#

Vistgerðir á miðhálendi Íslands : Kjölur - Guðlaugstungur

Skoða venjulega færslu

dc.contributor Guðmundur A. Guðmundsson 1961 is
dc.contributor Borgþór Magnússon 1952 is
dc.contributor Erling Ólafsson 1949 is
dc.contributor Guðmundur Guðjónsson 1953 is
dc.contributor Hörður Kristinsson 1937 is
dc.contributor Kristbjörn Egilsson 1949 is
dc.contributor Kristinn Haukur Skarphéðinsson 1956 is
dc.contributor Sigurður H. Magnússon 1945 is
dc.contributor Starri Heiðmarsson 1969 is
dc.contributor Orkustofnun is
dc.contributor Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma is
dc.date.accessioned 2013-12-11T12:38:39Z
dc.date.available 2013-12-11T12:38:39Z
dc.date.issued 2009-12
dc.identifier.issn 1670-0120
dc.identifier.uri http://hdl.handle.net/10802/4433
dc.description Unnið fyrir Orkustofnun vegna Rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma is
dc.description Höfundar: Guðmundur A. Guðmundsson, Borgþór Magnússon, Erling Ólafsson, Guðmundur Guðjónsson, Hörður Kristinsson, Kristbjörn Egilsson, Kristinn Haukur Skarphéðinsson, Sigurður H. Magnússon og Starri Heiðmarsson is
dc.description Myndefni: myndir, gröf, kort, töflur is
dc.description.abstract Lýst er rannsóknum á vistgerðum á 1096 km² landsvæði milli Langjökuls og Hofsjökuls á miðhálendi Íslands. Rannsóknasvæðið er kennt við Kjöl–Guðlaugstungur. Er það eitt af átta svæðum sem Náttúrufræðistofnun Íslands hefur rannsakað í tengslum við Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Megintilgangur rannsóknanna er að skilgreina, lýsa og meta verndargildi vistgerða.

Á rannsóknasvæðinu Kili–Guðlaugstungum var eyðilendi ríkjandi (604 km²) eða 55% svæðisins. Af þessu landi voru melavistir langstærstar (520 km²). Útbreiðsla moslendis var fremur lítil, en alls voru þær vistir um 71 km² að flatarmáli, eða 6% svæðisins. Víðáttumest var melagambravist (49 km²) sem er einkum í fjalllendinu í Kerlingarfjöllum og nágrenni og í Kjalhrauni suður af Hveravöllum. Af vel grónu landi voru vistgerðir mólendis langstærstar (275 km²) eða fjórðungur svæðisins. Tæpur helmingur mólendisins flokkaðist sem giljamóa- og lyngmóavistir en þær voru alls 131 km² að flatarmáli eða 12% svæðisins.

Allar þær sex vistgerðir sem taldar eru hafa hæst verndargildi á miðhálendi Íslands finnast á Kili–Guðlaugstungum og raðaðist svæðið efst af átta rannsóknasvæðum á miðhálendinu. Ræðst það að hluta til af stærð þess en einnig er þar hlutfallslega mikið af giljamóavist, lyngmóavist, rústamýravist, lágstaraflóavist og hástaraflóavist. Gróðurlendi telst hafa hátt verndargildi en samfelld gróðurþekja nær frá láglendi að norðan og suður undir Hveravelli. Háttar þannig til á aðeins einum öðrum stað á miðhálendinu, þ.e. á Snæfellsöræfum. Um 25% íslensk-grænlenska heiðagæsastofnsins verpur á rannsóknasvæðinu, einkum í Guðlaugstungum. Er það svæði nú langstærsta heiðagæsabyggð í heimi og hefur mjög hátt alþjóðlegt verndargildi.
is
dc.format.extent 92 s. is
dc.language.iso is
dc.publisher Náttúrufræðistofnun Íslands is
dc.relation.ispartofseries Náttúrufræðistofnun Íslands., Skýrslur ; NÍ-09016
dc.relation.uri http://utgafa.ni.is/skyrslur/2009/NI-09016.pdf
dc.relation.uri http://utgafa.ni.is/skyrslur/2009/NI-09016_vistgerdakort.pdf
dc.relation.uri http://utgafa.ni.is/skyrslur/2009/NI-09016_grodurkort_nordur.pdf
dc.relation.uri http://utgafa.ni.is/skyrslur/2009/NI-09016_grodurkort_sudur.pdf
dc.subject Gróðurkort is
dc.subject Háplöntur is
dc.subject Mosar is
dc.subject Fléttur (plöntur) is
dc.subject Fuglar is
dc.subject Virkjanir is
dc.subject Hálendi Íslands is
dc.subject Guðlaugstungur is
dc.subject Kjölur is
dc.title Vistgerðir á miðhálendi Íslands : Kjölur - Guðlaugstungur is
dc.type Bók is
dc.identifier.gegnir 991009036549706886


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
NI-09016.pdf 15.98Mb PDF Skoða/Opna
NI-09016_vistgerdakort.pdf 8.498Mb PDF Skoða/Opna
NI-09016_grodurkort_nordur.pdf 11.35Mb PDF Skoða/Opna
NI-09016_grodurkort_sudur.pdf 13.40Mb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða venjulega færslu

Leita


Fletta