Titill: | Geysir í Haukadal : breytingar á rennsli og yfirborðshita vegna dælingar í Neðridal og Kjarnholtum 2005Geysir í Haukadal : breytingar á rennsli og yfirborðshita vegna dælingar í Neðridal og Kjarnholtum 2005 |
Höfundur: | Helgi Torfason 1949 ; Orkuveita Reykjavíkur |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/4191 |
Útgefandi: | Náttúrufræðistofnun Íslands |
Útgáfa: | 03.2006 |
Ritröð: | Náttúrufræðistofnun Íslands., Skýrslur ; NÍ-06005 |
Efnisorð: | Jarðhiti; Jarðhitarannsóknir; Borholur; Geysir í Haukadal; Strokkur |
ISSN: | 1670-0120 |
Tungumál: | Íslenska |
Tengd vefsíðuslóð: | http://utgafa.ni.is/skyrslur/2006/NI-06005.pdf |
Tegund: | Skýrsla |
Gegnir ID: | 991003350779706886 |
Athugasemdir: | Unnið fyrir Orkuveitu Reykjavíkur Myndefni: myndir, kort, línurit, töflur |
Útdráttur: | Dælt var úr borholu í Neðridal frá 9. júní til 3. ágúst 2005 og úr borholu í Kjarnholtum frá 5. október til 7. desember 2005. Fylgst var með hvort áhrif yrðu á yfirborðshita á Geysissvæðinu þennan tíma sem unnt væri að heimfæra með vissu upp á dælingar úr borholunum. Slíkar breytingar þurfa að vera meiri en náttúrulegar breytingar vegna veðurfars. Ekki urðu breytingar á gostíðni í Geysi og Strokki vegna dælingar í nágrenninu, enda var fremur lítlu magni dælt um borholurnar. Engar breytingar komu fram á yfirborðshita sem rekja mátti með vissu til dælinga úr borholum í nágrenni Geysissvæðisins. Erfitt er að meta hvort langtímaáhrif myndu koma fram á yfirborðshita á Geysissvæðinu ef dæling stæði yfir mánuðum saman. Miðað við það magn sem dælt var þetta tímabil virðist sem sú hætta sé lítil, þ.e.a.s. ef dæling í Neðridal fer ekki yfir 4–5 l/s og 3 l/s í Kjarnholtum.
Miðað við þau áhrif sem urðu á vatnsborði í borholum í Helludal vegna dælinga í Neðridal má eiga von á áhrifum á yfirborðshita á Geysissvæðinu ef hámarksdæling er notuð í Neðridal eða ef vatnsborð þar er dregið mjög langt niður. Ef ákveðið verður að nýta borholur í nágrenni við Geysi er nauðsynlegt að fylgjast náið með jarðhita á Geysissvæðinu. Dæling úr jarðhitakerfum í langan tíma hefur áhrif á jarðhitakerfin og aðeins vöktun getur svarað þeirri spurningu hvort dæling í langan tíma hafi merkjanleg áhrif á yfirborðshitann. Geysissvæðið er það dýrmætt svæði að enga áhættu má taka vegna nýtingar á heitu vatni í nágrenni þess. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
NI-06005.pdf | 4.736Mb |
Skoða/ |