#

Upplýsingastefna Stjórnarráðsins - Samfélagsmiðlar : Skýrsla og tillögur til ráðuneytisstjóra

Skoða venjulega færslu

dc.contributor.author Vinnuhópur um samfélagsmiðla og upplýsingastefnu Stjórnarráðsins is
dc.date.accessioned 2013-05-10T09:43:37Z
dc.date.available 2013-05-10T09:43:37Z
dc.date.issued 2012-05
dc.identifier.uri http://hdl.handle.net/10802/2719
dc.description Á fundi ráðuneytisstjóra 13. mars 2012 var samþykkt að tillögu ráðuneytisstjóra umhverfisráðuneytis að hópur fulltrúa ráðuneyta fjallaði um stefnu Stjórnarráðsins um notkun samfélagsmiðla sem hluta af upplýsingastefnu sem mótuð yrði fyrir Stjórnarráðið í heild.
Í hópinn voru tilefnd:
forsætisráðuneyti: Una Björk Ómarsdóttir, lögfræðingur, sem leiddi hópinn
Björn Sigurðsson, vefstjóri
Edda Rúna Kristjánsdóttir, skjalastjóri
Jóhann Hauksson, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar
efnahags- og viðskiptaráðuneyti: Steindór Grétar Jónsson, sérfræðingur
fjármálaráðuneyti: Rósa Björk Brynjólfsdóttir, upplýsingafulltrúi
iðnaðarráðuneyti: Þórir Hrafnsson, upplýsingafulltrúi
innanríkisráðuneyti: Jóhannes Tómasson, upplýsingafulltrúi
mennta- og menningarmálaráðuneyti: Þorgeir Ólafsson, upplýsingafulltrúi
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti: Guðný Steina Pétursdóttir, stjórnarráðsfulltrúi
umhverfisráðuneyti: Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi
utanríkisráðuneyti: Þurý Björk Björgvinsdóttir, sérfræðingur
velferðarráðuneyti: Margrét Erlendsdóttir, upplýsingafulltrúi
rekstrarfélag Stjórnarráðsins: Guðmundur H. Kjærnested, framkvæmdastjóri
Hópnum var falið að:
1. fjalla um hvernig Stjórnarráðið geti nýtt sér samfélagsmiðla, meðal annars með hliðsjón af reynslu þeirra fimm ráðuneyta sem í dag halda úti Facebook-síðu. Ljóst er að notkun fyrirtækja og opinberra stofnana á samfélagsmiðlum færist í vöxt og verður varla aftur snúið með þá þróun.
2. gera drög að leiðbeiningum um það hvernig umgangast eigi samfélagsmiðla ráðuneytanna.
3. gera tillögu um vinnslufarveg heildstæðrar upplýsingastefnu fyrir Stjórnarráðið sem stefna um notkun samfélagsmiðla yrði hluti af.
4. gera tillögu um fyrirkomulag fræðslu um notkun samfélagsmiðla fyrir starfsmenn Stjórnarráðsins og eftir atvikum ráðherra.
Hópurinn hittist fjórum sinnum til að ræða verkefnið. Hópnum var einnig skipt upp í fjóra undirhópa sem funduðu eftir þörfum, fjölluðu hver um sitt verkefni og unnu drög að köflum 1-4 í skýrslunni. Þriggja manna hópur sá síðan um lokavinnslu texta, samræmingu, yfirlestur og frágang.
Drög að leiðbeiningum um það hvernig umgangast eigi samfélagsmiðla ráðuneytanna (kafli 2) þarf að vinna frekar. Hópurinn gerir ráð fyrir að frekari vinna fari fram í hverju ráðuneyti fyrir sig. Kjósi ráðuneyti að nýta sér samfélagsmiðla setji hvert og eitt ráðuneyti sér reglur um notkun þeirra, með hliðsjón af þeim drögum sem hópurinn hefur unnið og væntanlegum kafla í Vefhandbókinni um samfélagsmiðla (Vefhandbókin – Handbók um opinbera vefi, vistuð á UT-vefnum). Slíkar leiðbeiningar þurfa að vera lifandi og taka breytingum eftir því sem reynslan kennir.Hópurinn telur að leiðbeiningar um notkun samfélagsmiðla eigi að vera hluti af Starfsmannahandbók Stjórnarráðsins.
Lögð er áhersla á að vinna við upplýsingastefnu fyrir Stjórnarráðið verði hafin sem fyrst. Þegar stefnan verður fullmótuð telur hópurinn að hana eigi að birta á vef Stjórnarráðsins.
is
dc.language.iso is
dc.subject Stefnumótun is
dc.subject Stjórnsýsla is
dc.subject Opinberir starfsmenn is
dc.subject Netið is
dc.subject Fjölmiðlar is
dc.subject Skýrslur is
dc.title Upplýsingastefna Stjórnarráðsins - Samfélagsmiðlar : Skýrsla og tillögur til ráðuneytisstjóra is
dc.type Skýrsla is


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
tillogur-vinnuhops-samfelagsmidlar.pdf 1.028Mb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða venjulega færslu

Leita


Fletta