dc.contributor.author |
Andri Rafn Ottesen 1991 |
is |
dc.contributor.author |
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson 1954 |
is |
dc.date.accessioned |
2019-08-28T11:25:56Z |
|
dc.date.available |
2019-08-28T11:25:56Z |
|
dc.date.issued |
2019 |
|
dc.identifier.uri |
http://hdl.handle.net/10802/18527 |
|
dc.description |
Rafræn útgáfa eingöngu |
is |
dc.description.abstract |
Tilefni þessarar greinar er umræða um mögulegan kennaraskort í grunnskólum en einkum þó staða og fækkun kennslukarla í grunnskólum. Fræðilegur bakgrunnur hennar er annars vegar rannsóknir á leiðsögn við nýliða í starfi og hins vegar er sjónum beint að kennslukörlum í starfi. Sagt er frá rannsókn þar sem rætt var við fjóra nýbrautskráða karla og þeim fylgt eftir fyrstu sex mánuðina í starfi með þremur viðtölum við hvern þeirra skólaárið 2017–2018. Þeir voru spurðir hvernig hefði gengið í starfinu að loknu námi og hvort þeir hefðu upplifað einhverja þætti sem líklegt væri að tengdust því að þeir væru karlar. Meginrannsóknarspurningin var tvíþætt: Hvernig gengur nýbrautskráðum körlum á vettvangi starfsins og þurfa þeir sérhæfðan stuðning í starfinu á grundvelli kyns síns? Í greininni er gerð grein fyrir þremur þemum: Upplifun karlanna af nýjum starfsvettvangi og starfsumhverfinu þar; reynslu þeirra af leiðsögn við þá sem nýliða; og loks hvort og hvernig kyn og kyngervi birtast í frásögnum þeirra. Viðmælendur okkar töldu að sér hefði gengið vel að fóta sig í starfi og þeir voru ánægðir með leiðsögnina, þótt hún hefði ekki verið jafn formleg og mælt er með í fræðum og rannsóknum um leiðsögn. Svarið við spurningunni hvort það þurfi sérhæfðan stuðning eftir kyni er ekki einhlítt. Í svörum viðmælenda kom fram að í þremur skólanna sem þeir störfuðu hefðu verið karlaklúbbar sem þeir töldu að hefðu verið sér gagnlegir við að aðlagast skólabragnum. Höfundar telja rétt að kanna hvort kynskiptir klúbbar gagnist í því viðfangsefni að nýliðar haldist í starfinu. Mikilvægi markvissrar leiðsagnar fyrir nýliða í starfi er þó ekki kynbundið atriði heldur verður að leggja áherslu á að allir nýir kennarar, óháð kyni, fái góða leiðsögn þegar þeir stíga sín fyrstu skref... |
is |
dc.language.iso |
is |
|
dc.relation.ispartof |
Netla 2019 |
is |
dc.relation.ispartof |
991007205689706886 |
|
dc.relation.uri |
http://netla.hi.is/greinar/2019/ryn/01.pdf |
|
dc.subject |
Ritrýndar greinar |
is |
dc.subject |
Grunnskólakennarar |
is |
dc.subject |
Fyrsta kennsluárið |
is |
dc.subject |
Karlar |
is |
dc.subject |
Kynhlutverk |
is |
dc.title |
Eftirsóttasti minnihlutahópurinn? : fyrstu mánuðir fjögurra karla í grunnskólakennslu |
is |
dc.type |
Tímaritsgrein |
is |
dc.identifier.gegnir |
991011342369706886 |
|