dc.contributor.author | Ragnar Jóhannsson | is |
dc.contributor.author | Helgi Thorarensen | is |
dc.contributor.author | Ólafur Ögmundsson | is |
dc.date.accessioned | 2011-08-31T09:37:52Z | |
dc.date.available | 2011-08-31T09:37:52Z | |
dc.date.issued | 2010-06 | |
dc.identifier.issn | 1670-7192 | |
dc.identifier.uri | http://hdl.handle.net/10802/1471 | |
dc.description.abstract | Vatnsþörf í fiskeldi er óhemju mikil og það sem endanlega takmarkar
stærð og framleiðslugetu fiskeldisstöðva er aðgengi að heitu og köldu vatni. Markmið verkefnisins var að prófa ódýra og einfalda leið til þess að draga úr vatnsnotkun í bleikjueldi. Í upphafi verkefnisins var gert var ráð fyrir því að hægt væri að nýta vatn í bleikjueldi fjórfalt betur en nú er gert. Hins vegar kom í ljós að það er hægt að nýta vatnið sjöfalt betur. Niðurstaða þessarar rannsóknar er sú að hægt er að framleiða í kringum sjö sinnum meira af lífmassa í fiskeldi á landi með því vatnsmagni sem notað er í dag. Markmiðum verkefnisins var því náð og gott betur. Til þess að það sé hægt þarf að hafa eftirfarandi atriði í huga: • Mjög mikilvægt er að losa grugg sem fyrst úr vatninu. Því er tromlusía nauðsynlegur búnaður og ber að sía allt vatnið við hvern hring endurnýtingar. Í síunni ætti að notast við 100 μm dúk en hann hreinsar allar agnir sem minnkað geta virkni eldiskerfisins. • Nægur straumur verður að vera í eldiskerjunum og æskilegt er að vatnskiptahraði sé ekki minni en 45 mínútur til að tryggja sjálfhreinsun og til að fullnægja súrefnisþörf fiska við mikla þéttni. • Lífhreinsir er nauðsynlegur útbúnaður þegar endurnýting er meiri en 0,03‐0,05 L kg‐1∙mín‐1. Hann losar ammoníak úr eldisvökvanum. Lífhreinsirinn sem notaður var í þessari rannsókn hefur sýnt sig að virkar vel og einkaleyfi hefur fengist á hönnun hans. |
is |
dc.language.iso | is | |
dc.publisher | Matís | is |
dc.relation.ispartofseries | Skýrsla Matís ; 26-10 | |
dc.subject | Vatnsþörf | is |
dc.subject | Bleikja | is |
dc.subject | Endurnýtingarkerfi | is |
dc.title | Betri nýting vatns í bleikjueldi | is |
dc.title.alternative | Efficient rearing systems for Arctic charr | en |
dc.type | Skýrsla | is |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
26-10-1722-Orku ... i-fiskeldi-Lokaskyrsla.pdf | 3.097Mb |
Skoða/ |