dc.contributor.author | Gunnþórunn Einarsdóttir 1974 | is |
dc.contributor.author | Kolbrún Sveinsdóttir | is |
dc.contributor.author | Emilía Martinsdóttir 1949 | is |
dc.contributor.author | Friðrik H. Jónsson 1951-2010 | is |
dc.contributor.author | Inga Þórsdóttir | is |
dc.contributor.author | Fanney Þórsdóttir 1965 | is |
dc.date.accessioned | 2011-08-16T15:48:19Z | |
dc.date.available | 2011-08-16T15:48:19Z | |
dc.date.issued | 2007-03 | |
dc.identifier.issn | 1670-7192 | |
dc.identifier.uri | http://hdl.handle.net/10802/1382 | |
dc.description | Verknr.: 1658. Styrktaraðili: AVS rannsóknasjóði í sjávarútvegi | is |
dc.description.abstract | Verkefnið hafði það að markmiði að afla upplýsinga um viðhorf og fiskneyslu ungs fólks.
Í skýrslunni er gerð gein fyrir niðurstöðum viðhorfs- og neyslukönnunar hjá fólki 17-26 ára og var gögnum safnað á tvennan hátt árið 2006. Upplýsingar frá Hagstofu Íslands sýndu að 61,5% fólks á þessum aldri voru í skóla og var könnunin lögð fyrir þann hóp í kennslustundum. Alls náðist í 800 framhaldsskólanema og 399 háskólanema. Úr 2300 manna tilviljunarúrtaki úr hópi vinnandi fólks (100% starfshlutfall) á aldrinum 17-26 ára frá Hagstofunni fengu 2252 spurningalistann sendan í pósti. Alls svöruðu 536 (24%) netkönnuninni. Samtals voru þetta 1735 svarendur af 2000 (86,7%) sem stefnt var að í upphafi. Spurningalistanum má skipta upp í tíu hluta. Í fyrsta hluta var spurt um viðhorf til heilsu og fæðuflokka. Í næsta hluta var spurt um fiskneyslu, neyslu fisktegunda, ýmissa matvæla og innkaup á fiski. Í þriðja hluta var spurt um smekk á mismunandi fiskréttum. Spurt var um hvað skipti mestu máli við innkaup á fiski í fjórða hluta. Í fimmta hluta var spurt um þætti sem hafa áhrif á fiskneyslu. Í sjötta hluta voru forsendur fiskneyslu metnar, þ.e. hvetjandi og letjandi þætti. Í þeim sjöunda var spurt um utanaðkomandi áhrifavalda á fiskneyslu. Í áttunda hluta var þekking á næringargildi og meðhöndlun fisks metin. Í níunda hluta var kannað hvaðan neytendur fá upplýsingar um fisk og það traust sem þeir bera til slíkra upplýsinga. Að lokum var spurt um bakgrunn viðmælenda. Spurningarnar voru greindar m.t.t. kyns, aldurs, menntunar, búsetu, fjölda barna yngri en 18 ára á heimili, hvort einstaklingarnir áttu börn eða ekki og heimilistekna. Að meðaltali borðar ungt fólk á aldrinum 17- 26 ára fisk sem aðalrétt 1,3 sinnum í viku eða um það bil fimm sinnum í mánuði sem er töluvert undir því sem ráðlagt er. Í ljós kom að matarvenjur í æsku hafa mótandi áhrif á fiskneyslu fólks og einnig búseta, annars vegar á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni sem og búseta í útlöndum á unga aldri. Fólk á aldrinum 17- 26 ár virðist hafa verið alið upp við fiskneyslu sem hefur veruleg áhrif á þeirra fiskneyslu. Einnig kom fram að sá hluti þessa fólks sem farið er að heiman borðar minnst af fiski. Þeir sem búa á landsbyggðinni hafa ekki fiskbúðir eða ferskfiskborð í matvörubúðunum í sínu byggðarlagi og hafa þar af leiðandi ekki úr jafn mörgum fiskréttum að velja í verslunum og borða frekar hefðbundanr fisktegundir og rétti. Fiskibollur, fiskur í raspi og soðinn fiskur, sem allt má telja fremur hefðbundna rétti virðist falla að smekk ákveðins hóps neytenda. Annar hópur er hrifnari af svo kölluðum földum fiski (létt sósa, þykk sósa, plokkfiskur og ofnréttir), og þriðji hópurinn kýs framandi rétti (mexikóskt, suðrænt, indverskt og japanskt). Kynbundinn munur er þó nokkur í viðhorfum og svara karlmenn að þeir séu minna fyrir hollan mat, fisk, grænmeti, pastarétti en eru hins vegar meira fyrir kjöt og skyndibita en konur. Konur eru meira fyrir fisk og njóta matarins betur með fiski heldur en án hans. Þær eru samt almennt minna fyrir mat en finnst meira gaman að elda mat. Fjölskyldan er sterkur áhrifavaldur varðandi fiskneyslu, mest er leitað til hennar um upplýsingar og mest traust er borið til hennar. Svo virðist sem ungt fólk treysti vísindafólki til að gefa áreiðanlegar upplýsingar, en lítið er leitað til þeirra um upplýsingar. Upplýsingar sem ungt fólk fær koma að miklu leyti af netinu og öðrum miðlum. Þetta þarf vísindafólk að nýta sér í meira mæli við að koma upplýsingum á framfæri sem eiga erindi til almennings. |
is |
dc.language.iso | is | |
dc.publisher | Matís | is |
dc.relation.ispartofseries | Skýrsla Matís ; 05-07 | |
dc.subject | Viðhorf | is |
dc.subject | Neytendur | is |
dc.subject | Fiskur | is |
dc.subject | Fiskneysla | is |
dc.title | Viðhorf og fiskneysla ungs fólks á aldrinum 18 til 25 ára - | is |
dc.type | Skýrsla | is |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Skyrsla_05-07.pdf | 1.615Mb |
Skoða/ |