Titill:
|
Stefna í málefnum nemenda af erlendum uppruna og innleiðing hennar í fjórum sveitarfélögum á ÍslandiStefna í málefnum nemenda af erlendum uppruna og innleiðing hennar í fjórum sveitarfélögum á Íslandi |
Höfundur:
|
Anh-Ðào Katrín Trân 1959
;
Hanna Ragnarsdóttir 1960
|
URI:
|
http://hdl.handle.net/10802/12547
|
Útgáfa:
|
2016 |
Efnisorð:
|
Ritrýndar greinar; Nýbúar; Menntamál; Menntakerfi; Fjölmenning; Menntastefna; Sveitarfélög
|
Tungumál:
|
Íslenska
|
Tengd vefsíðuslóð:
|
http://netla.hi.is/serrit/2016/namsrymi_felagslegs_rettlaetis_og_menntunar_an_adgreiningar_learning_spaces_for_inclusion_and_social_justice/004.pdf
|
Tegund:
|
Tímaritsgrein |
Gegnir ID:
|
991008111329706886
|
Birtist í:
|
Netla 2016
|
Athugasemdir:
|
Rafræn útgáfa eingöngu Sérrit 2016- Námsrými félagslegs réttlætis og menntunar án aðgreiningar/Learning spaces for inclusion and social justice |
Útdráttur:
|
Greinin fjallar um tveggja ára rannsóknarverkefni, Stefna í málefnum nemenda af erlendum uppruna og innleiðing hennar í fjórum sveitarfélögum á Íslandi (2014-2015) sem er hliðarverkefni rannsóknarverkefnisins Námsrými félagslegs réttlætis og menntunar án aðgreiningar: Frásagnir um velgengni nemenda af erlendum uppruna og skóla á fjórum Norðurlöndum (2013–2015). Rannsóknin er unnin í sömu sveitarfélögum og sú rannsókn, með megináherslu á stefnu, innleiðingu stefnu og forystu á sveitarstjórnarstigi. Þrjú meginmarkmið rannsóknarverkefnisins voru: a) Að greina stefnu í málefnum barna og nemenda af erlendum uppruna og innleið- ingu hennar á skólaskrifstofum eða -sviðum í fjórum sveitarfélögum á Íslandi. b) Að greina viðhorf stjórnenda á þessum skólaskrifstofum til stefnunnar. c) Að greina reynslu þeirra af stefnumörkun á sviðinu. Fræðilegur grunnur verkefnisins er í gagnrýnum fjölmenningarfræðum þar sem áhersla er m.a. á réttindi minnihlutahópa í samfélögum og menntun (May og Sleeter, 2010; Parekh, 2006). Eigindlegum aðferðum var beitt og gagnasöfnun í verkefninu fól í sér annars vegar viðtöl við lykilfólk á skólaskrifstofum í fjórum sveitarfélögum á Íslandi (alls níu viðtöl) og hins vegar söfnun og greiningu gagna um skólastefnu í sömu fjórum sveitarfélögum. Niðurstöður benda til þess að mikill áhugi og vilji sé meðal lykilfólks í öllum sveitarfélögunum til að efla nám barna af erlendum uppruna. Stefnumörkun á sviðinu er mismunandi og tengsl virðist að einhverju leyti skorta milli stefnunnar og framkvæmdar hennar. |