dc.contributor.author |
Anna Elísa Hreiðarsdóttir 1965 |
is |
dc.contributor.author |
Eygló Björnsdóttir 1951 |
is |
dc.date.accessioned |
2016-11-14T08:21:26Z |
|
dc.date.available |
2016-11-14T08:21:26Z |
|
dc.date.issued |
2016 |
|
dc.identifier.uri |
http://hdl.handle.net/10802/11878 |
|
dc.description |
Rafræn útgáfa eingöngu |
is |
dc.description |
Ritrýnd grein |
is |
dc.description.abstract |
Í þessari grein er fjallað um sumarlokun leikskóla og hvernig ákvarðanir rekstraraðila tengdar þeim geta haft áhrif á faglegt starf í skólunum og starfsaðstæður kennara og barna. Börn á leikskólaaldri eru ekki skólaskyld og foreldrar greiða fyrir vistun þeirra, því er rekstrarlega mikilvægt að taka inn ný börn sem allra fyrst svo greiðslur falli ekki niður. Rekstrarlegir þættir þrýsta á um fulla nýtingu allan ársins hring og það skapar sérstakar aðstæður sem ekki eru fordæmi fyrir á öðru skólastigi. Greinin byggir á rannsókn sem framkvæmd var vorið 2011. Spurningakönnun var lögð fyrir 110 leikskólastjóra en það er tæplega 40% leikskólastjóra í landinu og var svörunin 60%. Markmið hennar var að kanna áhrif sumarlokunar á starf og starfsaðstæður í leikskólum. Skortur er á íslenskum rannsóknum á starfsumhverfi leikskóla í landinu og takmörkuð þekking fyrirliggjandi, ekki hvað síst um samspil ytri ákvarðana og faglegs starfs. Því er efnið sem hér um ræðir mikilvægt innlegg í bæði fræðilega og rekstrarlega umræðu um málefni leikskóla. Helstu niðurstöður eru að það skiptir máli fyrir starfið í leikskólunum hvort þeir loka að sumrinu eður ei, hve lengi þeir loka og á hvaða tímabili. Það eru oftast rekstraraðilar sem taka ákvarðanir um hvernig sumarlokun er háttað. Ákvarðanir eru pólitískar og geta breyst frá ári til árs, jafnvel vegna þrýstings frá hagsmunaaðilum; atvinnurekendum og foreldrum. Það er síðan á ábyrgð skólastjóra að vinna úr aðstæðum hverju sinni. Í niðurstöðum gætir ákveðinna þversagna. Skólastjórar hafa orð á margvíslegum áhrifum ytri ákvarðana en telja þær ekki hafa mikil áhrif á faglegt starf. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að mikilvægt sé að skoða betur áhrif sumarlokunar á faglegt starf skólanna og starfsaðstæður kennara og barna. |
is |
dc.language.iso |
is |
|
dc.relation.ispartof |
Netla 2016 |
is |
dc.relation.ispartof |
991007205689706886 |
|
dc.relation.uri |
http://netla.hi.is/greinar/2016/ryn/03_ryn_arsrit.pdf |
|
dc.subject |
Leikskólastarf |
is |
dc.subject |
Skólafrí |
is |
dc.subject |
Starfsumhverfi |
is |
dc.subject |
Leikskólar |
is |
dc.title |
Sumarlokun leikskóla : áhrif á faglegt starf og starfsaðstæður |
is |
dc.type |
Tímaritsgrein |
is |
dc.identifier.gegnir |
991007665059706886 |
|