dc.contributor.author |
Sigrún Harðardóttir 1956 |
is |
dc.contributor.author |
Guðrún Kristinsdóttir 1945 |
is |
dc.date.accessioned |
2016-11-09T11:46:24Z |
|
dc.date.available |
2016-11-09T11:46:24Z |
|
dc.date.issued |
2016 |
|
dc.identifier.uri |
http://hdl.handle.net/10802/11875 |
|
dc.description |
Rafræn útgáfa eingöngu |
is |
dc.description |
Ritrýnd grein |
is |
dc.description.abstract |
Í greininni er fjallað um stöðu nemenda sem eiga við námsvanda að stríða innan skólakerfisins. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að námserfiðleikar eru einn helsti áhættuþátturinn að baki brotthvarfi úr námi. Greint er frá niðurstöðum nýlegrar rannsóknar sem ætlað var að varpa ljósi á hvað nemendur með námserfiðleika telja að hafi haft áhrif á námsárangur þeirra. Byggt er á vistfræðikenningu Bronfenbrenners um gagnvirk áhrif foreldra, skóla og samfélags á þroska og aðlögun barna, og á öðrum rannsóknum sem sýna hvað hefur áhrif á líðan nemenda með námserfiðleika og námsframvindu þeirra. Tekin voru viðtöl við tíu ungmenni sem áttu við námserfiðleika að stríða alla skólagönguna en náðu þrátt fyrir það að ljúka námi í framhaldsskóla. Sjónarmið nemenda sjálfra eru nú í auknum mæli talin mikilvæg og viðtalsrannsóknir undanfarinna ára sýna að mörg börn og ungmenni tjá sig vel um eigin reynslu. Leitað var svara við eftirfarandi meginspurningum: Hver er reynsla nemenda með námserfiðleika af skólagöngu? Hvað stuðlar að jákvæðri námsframvindu á meðal nemenda með námserfiðleika? Í viðtölunum komu fram þrjú meginatriði: a) Erfiðleikar við að fá námsvandann viðurkenndan, b) tilhneiging til að aðgreina nemendur og flokka, og c) hvatning og stuðningur foreldra og skóla sem stuðlaði að seiglu og velgengni í námi. Seigla sem nemendur komu sér upp með stuðningi í nærumhverfinu virtist ráða mestu um aukna trú ungmennanna á eigin getu. Þetta varð til að þeim tókst að ljúka námi þrátt fyrir námserfiðleika. Í greininni er þessum niðurstöðum lýst og loks er fjallað um mikilvægi þess að tryggja farsælt nám allra á jafnréttisgrunni með því að skólar komi betur til móts við þann hóp nemenda sem gengur illa í námi. |
is |
dc.language.iso |
is |
|
dc.relation.ispartof |
Netla 2016 |
is |
dc.relation.ispartof |
991007205689706886 |
|
dc.relation.uri |
http://netla.hi.is/greinar/2016/ryn/02_ryn_arsrit.pdf |
|
dc.subject |
Framhaldsskólanemar |
is |
dc.subject |
Námsörðugleikar |
is |
dc.subject |
Stuðningsúrræði |
is |
dc.title |
Námserfiðleikar og velgengni í námi : um mikilvægi stuðnings |
is |
dc.type |
Tímaritsgrein |
is |
dc.identifier.gegnir |
991007664889706886 |
|