#

Efnahagsleg umsvif og afkoma sjávarklasans á Íslandi 2011

Skoða venjulega færslu

dc.contributor Haukur Már Gestsson 1988 is
dc.contributor.author Þór Sigfússon 1964 is
dc.date.accessioned 2014-09-09T15:19:07Z
dc.date.available 2014-09-09T15:19:07Z
dc.date.issued 2012
dc.identifier.isbn 9789935908315
dc.identifier.uri http://hdl.handle.net/10802/6975
dc.description Myndefni: myndir, línurit, töflur. is
dc.description.abstract Niðurstöður greiningarinnar, sem hér er birt, gefa mynd af þeim áhrifum sem ætla má að íslenski
sjávarklasinn hafi haft á atvinnustarfsemi og hagkerfið í heild árið 2011.

Niðurstöðurnar eru þær að framlag sjávarútvegs og tengdra greina í sjávarklasanum, í formi beins
og óbeins framlags, eftirspurnaráhrifa og sjálfstæðs útflutnings stoðgreina nemi um 27,1% af
vergri landsframleiðslu en þetta sama hlutfall var áætlað um 26% árið 2010.

Þá benda niðurstöðurnar til þess að störfum í sjávarklasanum hafi fjölgað um a.m.k. 3 til 5% á árinu 2011. Aukningin milli ára skýrist m.a. í fjölgun starfa í fiskvinnslu og útgerð, tæknifyrirtækjum og ýmsum óbeinum störfum sem tengjast sjávarútvegi. Í samtölum við fjölda útgerðarfyrirtækja kom fram að þau stefna að aukinni hagræðingu og fækkun starfsfólks til að mæta aukinni skattheimtu. Þessi fækkun starfsfólks kom þó ekki fram á árinu 2011 en er líkleg til að hafa áhrif á árinu 2012 og 2013.

Athygli vekur að velta í mörgum greinum klasans hefur vaxið mun meira hlutfallslega en starfsmannafjöldi sem gefur til kynna að framleiðni hafi aukist. Ný skýrsla ráðgjafarfyrirtækisins McKinsey um íslenska hagkerfið tiltók að íslenskur sjávarútvegur væri sá atvinnuvegur sem best hafi tekist að auka framleiðni á undanförnum árum. Þessi þróun virðist halda áfram árið 2011. Einna mestur vöxtur hefur orðið í tæknifyrirtækjum í sjávarklasanum. Áætlað er að velta þessara fyrirtækja hafi aukist um 15% á árinu 2011 í samanburði við árið 2010. Þá eru ýmis merki um að vöxtur í iðnaði tengdum fullvinnslu afurða og líftækni hafi orðið um 10-15% en gera má ráð fyrir að sá vöxtur verði meiri á komandi misserum miðað við þær áætlanir sem ýmis fyrirtæki á þessu sviði hafa uppi. Aukin velta í sjávarútvegi hafði jákvæð áhrif á nær allar aðrar tengdar greinar hvort sem er í verslun, þjónustu eða iðnaði.
Sé litið á sjávarklasann í heild var árið 2011 gott ár með aukinni arðsemi á flestum sviðum. Blikur eru þó á lofti í greininni með auknum álögum og óvissu á alþjóðlegum mörkuðum. Frekari vöxtur og framleiðniaaukning í sjávarklasanum fæst með því að stöðugleiki ríki í rekstrarumhverfi hans og óvissu verði eytt um fyrirkomulag fiskveiða.
is
dc.format.extent 11 s. is
dc.language.iso is
dc.publisher Íslenski sjávarklasinn is
dc.relation.uri http://www.sjavarklasinn.is/wp-content/uploads/2012/12/Efnahagsleg_umsvif_20111.pdf
dc.subject Sjávarútvegur is
dc.subject Vinnumarkaður is
dc.subject Framleiðsla is
dc.subject Ísland is
dc.title Efnahagsleg umsvif og afkoma sjávarklasans á Íslandi 2011 is
dc.type Bók is
dc.identifier.gegnir 991002388069706886


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
Efnahagsleg_umsvif_20111.pdf 10.93Mb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða venjulega færslu

Leita


Fletta