#

Gróðurfar við Bakka norðan Húsavíkur

Skoða venjulega færslu

dc.contributor Kristín Ágústsdóttir 1973 is
dc.contributor Alcoa (álframleiðandi) is
dc.contributor HRV Engineering is
dc.contributor.author Gerður Guðmundsdóttir 1970 is
dc.date.accessioned 2014-09-05T12:46:11Z
dc.date.available 2014-09-05T12:46:11Z
dc.date.issued 2009-07
dc.identifier.uri http://hdl.handle.net/10802/6898
dc.description Unnið fyrir HRV/Alcoa á Íslandi is
dc.description Myndefni: myndir, tafla is
dc.description.abstract Að beiðni HRV, fyrir hönd Alcoa á Íslandi gerði Náttúrustofa Austurlands úttekt á gróðri sumarið 2007 á fyrirhuguðu iðnaðarsvæði við Bakka, 3 km norðan Húsavíkur. Tilgangurinn var að lýsa gróðri á svæðinu og kanna hvort þar væri að finna sjaldgæfar eða sérstakar tegundir.

Alls fundust 117 tegundir háplantna við vettvangsathugun sumarið 2007 og telst það töluverð fjölbreytni miðað við stærð rannsóknasvæðisins. Ekki fundust friðlýstar tegundir eða tegundir á Válista. Engar tegundir eru sjaldgæfar á lands- eða héraðsvísu en ein tegund, brönugrös (Dactylorhiza maculata), er skráð sem sjaldséð í Þingeyjarsýslum.

Það sem einkenndi helst gróður á rannsóknasvæðinu var víðáttumikið votlendi en það þakti ríflega þriðjung af afmörkuðu athugunarsvæði. Votlendið náði yfir um 36 hektara og féll því undir skilgreiningu náttúruverndarlaga nr. 44 frá 1999 um sérstaka vernd mýra og flóa sem eru yfir 3 ha af stærð. Svæðið var að mestu fullgróið.

Eins og bent hefur verið á verða líklega mestu áhrif álvers á gróðurfar í næsta nágrenni þess ekki af völdum mengunar, heldur af völdum framkvæmda þar sem gróðurhula og jarðvegur verða fjarlægð á stórum svæðum. Slíkar framkvæmdir geta haft áhrif á vatnsbúskap á svæðinu og þar af leiðandi á tegundasamsetningu.
is
dc.format.extent 7, 6 s. is
dc.language.iso is
dc.publisher Náttúrustofa Austurlands is
dc.relation.ispartofseries Náttúrustofa Austurlands ; NA-090087
dc.relation.uri http://www.alcoa.com/iceland/ic/pdf/vidauki_06_grodur.pdf
dc.subject Gróðurfar is
dc.subject Stóriðja is
dc.subject Umhverfismat is
dc.subject Umhverfisáhrif is
dc.subject Bakki við Húsavík is
dc.subject Húsavíkurbær is
dc.title Gróðurfar við Bakka norðan Húsavíkur is
dc.type Bók is
dc.identifier.gegnir 991000561929706886


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
vidauki_06_grodur.pdf 1.545Mb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða venjulega færslu

Leita


Fletta