Titill: | Hringvegur um Hornafjarðarfljót í Hornafirði : tillaga að matsáætlunHringvegur um Hornafjarðarfljót í Hornafirði : tillaga að matsáætlun |
Höfundur: | |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/4937 |
Útgefandi: | Vegagerðin, veghönnunardeild |
Útgáfa: | 10.2006 |
Efnisorð: | Umhverfismat; Umhverfisáhrif; Vegagerð; Hornafjarðarfljót; Hornafjörður; Austur-Skaftafellssýsla |
Tungumál: | Íslenska |
Tengd vefsíðuslóð: |
http://www.vso.is/MAU-Gogn/3-6-mau-hornafjardarfljot/skjol-og-myndir/2006-10-25-matsaaetlun-lokautgafa.pdf
http://www.vegagerdin.is/vefur2.nsf/Files/Hornafjardarfljotdrogadtillogu7/$file/Dr%C3%B6g%20a%C3%B0%20till%C3%B6gu%20a%C3%B0%20mats%C3%A1%C3%A6tlun%207.pdf |
Tegund: | Skýrsla |
Gegnir ID: | 991001547389706886 |
Athugasemdir: | Myndefni: myndir, kort Framkvæmdin sem hér um ræðir er 11-18 km löng veglagning, háð veglínum og nær frá Hringvegi vestan Hornafjarðarfljóta, yfir Hornafjarðarfljót og að Hringvegi skammt austan Hafnarvegar sem liggur að Höfn í Hornafirði (teikning 1). Framkvæmdaraðili er Vegagerðin og leggur hún fram þrjár veglínur til skoðunar í mati á umhverfisáhrifum, leið 1, leið 2 og leið 3. Framkvæmdin styttir Hringveginn um 10-12 km eftir því hvaða veglína er valin. Allur undirbúningur miðast við að framkvæmdir geti hafist árið 2008. Á vegáætlun (2008) er 166 milljóna króna fjárveiting til framkvæmda á Hringvegi um Hornafjarðarfljót í Sveitarfélaginu Hornafirði í Austur-Skaftafellssýslu. Einnig er fyrirhugað að fjármagna framkvæmdina með söluandvirði Símans, fyrir 800 m.kr. Samtals eru fjárveitingar til verksins því 966 m. kr. Lauslega áætlað er kostnaður við framkvæmdina hærri en þessu nemur eða 1,7- 2,2 milljarðar kr. Þar af er kostnaður við brúargerð áætlaður um 880 m. kr. Tillaga að matsáætlun fyrir framkvæmdina er unnin skv. lögum nr. 106/2000 m.s.br. um mat á umhverfisáhrifum og er hún aðgengileg á vef Vegagerðarinnar: www.vegagerdin.is. Drög að tillögu hafa þegar verið kynnt og almenningi gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum og fyrirspurnum. Tillaga að matsáætlun hefur verið endurskoðuð úr frá ábendingum sem bárust. Vegna frekara samráðs má senda tölvupóst á ebh@vegagerdin.is eða hringja í síma 522 1234 (Erna). Þá er auk þess hægt að senda skriflegar athugasemdir til: Vegagerðin b.t. Ernu Hreinsdóttur Borgartúni 5-7 105 Reykjavík |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
2006-10-25-matsaaetlun-lokautgafa.pdf | 7.910Mb |
Skoða/ |
|
Drög að tillögu að matsáætlun 7.pdf | 1.049Mb |
Skoða/ |