#

Gróðurkort af Glerárdal og heimalandi Akureyrar

Skoða fulla færslu

Titill: Gróðurkort af Glerárdal og heimalandi AkureyrarGróðurkort af Glerárdal og heimalandi Akureyrar
Höfundur: Guðmundur Guðjónsson 1953 ; Rannveig Thoroddsen 1966 ; Akureyrarkaupstaður
URI: http://hdl.handle.net/10802/4930
Útgefandi: Náttúrufræðistofnun Íslands
Útgáfa: 2011
Ritröð: Náttúrufræðistofnun Íslands., Skýrslur ; NÍ-11006
Efnisorð: Gróðurkort; Glerárdalur; Akureyri
ISSN: 1670-0120
Tungumál: Íslenska
Tengd vefsíðuslóð: http://utgafa.ni.is/skyrslur/2011/NI-11006.pdf
http://utgafa.ni.is/skyrslur/2011/NI-11006_grodurlendakort.pdf
http://utgafa.ni.is/skyrslur/2011/NI-11006_Akureyri_Heimaland_grodurkort.pdf
http://utgafa.ni.is/skyrslur/2011/NI-11006_Akureyri_Glerardalur_grodurkort.pdf
Tegund: Skýrsla
Gegnir ID: 991000507329706886
Athugasemdir: Unnið fyrir AkureyrarbæMyndefni: myndir, kort, línurit
Útdráttur: Hinn 12. maí 2009 óskaði Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála Akureyrarbæjar eftir því að Náttúrufræðistofnun Íslands gerði áætlun um gróðurkortlagningu og gróðurfarslýsingu af öllu landi Akureyrarbæjar. Hrísey og Grímsey eru þar ekki meðtalin. Þann 15. júlí 2009 var gerður samningur við stofnunina um gerð gróðurkorts af Glerárdal og heimalandi Akureyrar í tengslum við fyrirhugaða deiliskipulagsvinnu svæðisins. Sambærileg gróðurfarsúttekt var gerð í Hrísey 2007. Vettvangsvinna vegna gróðurkortagerðar var unnin 4.-8. ágúst 2009 og að hluta 15.-16. júlí 2010. Fyrirliggjandi voru frumgögn gróður- og landgreiningar af Glerárdal sem gerð var á vegum Rannsóknastofnunar landbúnaðarins 1966 og drög að gróðurkortum með skýrslu um gróðurkönnun í lögsagnarumdæmi Akureyrar eftir Elínu Gunnlaugsdóttur frá 1988. Gróður- og landflokkun fór að mestu fram með hefðbundnum aðferðum samkvæmt gróðurlykli Steindórs Steindórssonar (1981). Fjórum staðbundnum gróðurfélögum var bætt við lykilinn, þ.e. L5 (hvönn) og L6 (kerfill), H13 (grös og njóli) og T20 (skriðlíngresi).

Gróðurfar í landi Akureyrar er tvískipt, þ.e. annars vegar heimalandið (24,4 km2) og hins vegar afréttarlandið á Glerárdal (91,4 km2). Í heimalandinu er mikið um ræktað land ásamt grasgefnum þurrlendis- og votlendisgróðri með lyng- og runnaívafi. Þar bera merki um gamla búskaparhætti mikið beitt gömul tún næst bænum, en í nágrenni bæjarins eru einnig ung skógræktarlönd og talsverður landbúnaður. Í afréttarlandinu á Glerárdal er aftur á móti fjölbreyttur og kjarngóður, mismunandi vel gróinn, úthagagróður ásamt miklu af lítt- eða ógrónu landi. Gróna landið einkennist þar af mólendi og moslendi ásamt talsverðu votlendi og nokkru graslendi.

Á meðfylgjandi gróðurkortum (Akureyri, Glerárdalur, gróðurkort 1:15.000, Akureyri, heimaland, gróðurkort 1:10.000 og Akureyri-Glerárdalur, gróðurlendakort 1:25.000) eru alls greind 76 gróðurfélög sem dregin eru saman í gróðurlendi, gróðursamfélög og helstu landgerðir. Útbreiðslu þeirra og helstu einkennum er lýst nánar í skýrslunni.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða Lýsing
NI-11006.pdf 11.97Mb PDF Skoða/Opna Heildartexti
NI-11006_grodurlendakort.pdf 10.90Mb PDF Skoða/Opna Kort 1
NI-11006_Akureyri_Heimaland_grodurkort.pdf 11.61Mb PDF Skoða/Opna Kort 2
NI-11006_Akureyri_Glerardalur_grodurkort.pdf 27.03Mb PDF Skoða/Opna Kort 3

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta