#

Húsakönnun : Frakkastígur - Grettisgata - Vitastígur - Bergþórugata

Skoða venjulega færslu

dc.contributor Guðný Gerður Gunnarsdóttir 1953 is
dc.contributor Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík is
dc.contributor.author Drífa Kristín Þrastardóttir 1976 is
dc.date.accessioned 2014-01-09T09:25:27Z
dc.date.available 2014-01-09T09:25:27Z
dc.date.issued 2006
dc.identifier.uri http://hdl.handle.net/10802/4885
dc.description Unnið að beiðni Skipulagsfulltrúa Reykjavíkur vegna deiliskipulagsvinnu is
dc.description Myndefni: myndir, uppdr. is
dc.description Hér fer á eftir könnun byggðar á staðgreinireitum 1.190.0 og 1.190.2 í Reykjavík, en svæðið afmarkast af Frakkastíg, Grettisgötu, Vitastíg og Bergþórugötu. Húsakönnunin er unnin að beiðni Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur í samræmi við skipulagslög vegna gerðar deiliskipulags á svæðinu. Þessir reitir eru innan þess svæðis sem varðveisluskrá Reykjavíkur nær til, en það er svæðið innan Hringbrautar / Snorrabrautar. Húsin á þessum reitum voru flest byggð upp úr aldamótunum 1900 eða á tímabilinu 1902–1912, en mörg einnig á 3. og 4. áratugi aldarinnar og þau yngstu á 9. áratugnum. Ekki er um að ræða tæmandi sögulega úttekt á viðkomandi svæði, en þó er skoðað hvaða hús hafa verið byggð á svæðinu í gegnum árin og þau metin sem enn standa. Sú rannsókn er nauðsynleg til að átta sig á samhengi byggðarinnar og þróun svæðisins.

Við mat á varðveislugildi húsa hefur verið beitt svokallaðri SAVE-aðferð (Survey of Architectural Value in the Environment) sem gerð er grein fyrir í ritinu Leiðbeiningar um gerð bæja- og húsakannana, útgefnu af Húsafriðunarnefnd ríkisins 1996. Þar er höfð til hliðsjónar dönsk SAVE-aðferð, þar sem lagt er mat á fjóra þætti: Listrænt gildi, menningarsögulegt gildi, umhverfisgildi og upprunalega gerð. Varðveislugildi húsa byggist síðan á innbyrðis mati á vægi hvers þáttar og vega þar þyngst gildi byggingarlistar, menningarsögu og umhverfis. Einnig er stuðst við Húsverndarskrá Reykjavíkur, sem gefin var út sem þemahefti með Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996–2016, Húsvernd í Reykjavík, svæðið innan Hringbrautar / Snorrabrautar. Þar sem húsverndarskráin er ekki að öllu leyti byggð á rannsóknum heldur á fyrirliggjandi gögnum og úttekt byggðarinnar á staðnum, getur verið nauðsynlegt að gera breytingar eftir nákvæmari húsakönnun.
is
dc.format.extent 93 s. is
dc.language.iso is
dc.publisher Árbæjarsafn is
dc.relation.ispartofseries Minjasafn Reykjavíkur., Skýrslur Minjasafns Reykjavíkur - Árbæjarsafns ; nr. 131
dc.relation.ispartofseries Skýrslur Árbæjarsafns ; nr. 131
dc.relation.uri http://www.minjasafnreykjavikur.is/skyrslur/skyrsla_131.pdf
dc.subject Húsfriðun is
dc.subject Húsavernd is
dc.subject Byggingar is
dc.subject Reykjavík is
dc.title Húsakönnun : Frakkastígur - Grettisgata - Vitastígur - Bergþórugata is
dc.type Skýrsla is
dc.identifier.gegnir 991002871619706886


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
skyrsla_131.pdf 22.09Mb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða venjulega færslu

Leita


Fletta