#

Gróðurfar í votlendi á Fitjum í Skorradal : endurskoðað gróðurkort 2011

Skoða venjulega færslu

dc.contributor Kristbjörn Egilsson 1949 is
dc.contributor Karólína Hulda Guðmundsdóttir 1960 is
dc.contributor.author Guðmundur Guðjónsson 1953 is
dc.date.accessioned 2013-12-13T09:55:32Z
dc.date.available 2013-12-13T09:55:32Z
dc.date.issued 2011-12
dc.identifier.issn 1670-0120
dc.identifier.uri http://hdl.handle.net/10802/4502
dc.description Unnið fyrir Huldu Guðmundsdóttur, Fitjum is
dc.description Myndefni: myndir, kort, töflur is
dc.description.abstract Sumarið 1998 var gert gróðurkort, gróðurlendum lýst og tegundafjölbreytni háplantna könnuð á votlendissvæði í landi Fitja fyrir botni Skorradalsvatns. Vorið 2010 óskaði Hulda Guðmundsdóttir á Fitjum eftir að Náttúrufræðistofnun Íslands endurskoðaði gróðurkortið því henni virtust allmiklar breytingar hafa orðið á gróðurfari, einkum aukin útbreiðsla ágengu tegundarinnar alaskalúpínu. Vettvangsvinna vegna endurskoðunar gróðurkortsins ásamt skráningu háplantna var unnin í júlí 2010 og september 2011. Rannsóknasvæðið í landi Fitja er samtals 68 ha að flatarmáli.

Gróðurfar. Meginhluti svæðisins (95%) er gróið land, einungis 5% telst lítt eða ógróinn. Nær allt gróna landið (91%) er algróið og telst landið því vera mjög vel gróið. Votlendi er ríkjandi (62%) en graslendi hefur einnig talsverða útbreiðslu (23%). Alaskalúpína, sem er ágeng og breiðumyndandi tegund, hefur stóraukið útbreiðslu sína og þekur nú um 6% gróins lands. Önnur gróðurlendi hafa minni útbreiðslu.

Háplöntur. Á svæðinu hafa fundist 132 villtar tegundir auk fimm slæðinga . Í skráningunni árið 2010 bættust við 19 tegundir frá fyrri skráningu enda var nú farið víðar um svæðið. Nýskráðu tegundirnar hafa eflaust allar verið á svæðinu árið 1998.

Það fer ekki á milli mála að votlendið við árósa Fitjaár, þar sem hún fellur í Skorradalsvatn, er mikið náttúrudjásn. Í því felst mikil ábyrgð og um leið ögrun fyrir landeigendur að viðhalda þeirri stöðu áfram. Vegna áherslna á Fram-Skorradal sem ferðamannasvæði, aukinnar sumarhúsabyggðar í nágrenninu og mikillar skógræktar fer útivistargildi svæðisins vaxandi. Miklu skiptir að haldið verði þannig á málum að aukin umferð og ágangur valdi ekki skaða á náttúrufari svæðisins.
is
dc.format.extent 49 s., [1] kortas. is
dc.language.iso is
dc.publisher Náttúrufræðistofnun Íslands is
dc.relation.ispartofseries Náttúrufræðistofnun Íslands., Skýrslur ; NÍ-11007
dc.relation.uri http://utgafa.ni.is/skyrslur/2011/NI-11007.pdf
dc.subject Gróðurfar is
dc.subject Votlendi is
dc.subject Skorradalur is
dc.title Gróðurfar í votlendi á Fitjum í Skorradal : endurskoðað gróðurkort 2011 is
dc.type Skýrsla is
dc.identifier.gegnir 991000586649706886


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
NI-11007.pdf 9.020Mb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða venjulega færslu

Leita


Fletta