Titill: | Gróður á leið Blöndulínu 3 frá Blöndustöð til AkureyrarGróður á leið Blöndulínu 3 frá Blöndustöð til Akureyrar |
Höfundur: | Guðmundur Guðjónsson 1953 ; Kristbjörn Egilsson 1949 ; Rannveig Thoroddsen 1966 ; Landsnet |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/4418 |
Útgefandi: | Náttúrufræðistofnun Íslands |
Útgáfa: | 12.2009 |
Ritröð: | Náttúrufræðistofnun Íslands., Skýrslur ; NÍ-09018 |
Efnisorð: | Gróðurfar; Gróðurkort; Norðurland |
ISSN: | 1670-0120 |
Tungumál: | Íslenska |
Tengd vefsíðuslóð: |
http://utgafa.ni.is/skyrslur/2009/NI-09018.pdf
http://utgafa.ni.is/skyrslur/2009/NI-09018_kortahefti.pdf |
Tegund: | Skýrsla |
Gegnir ID: | 991008797909706886 |
Athugasemdir: | Fylgirit: Kortahefti. - [16] kortabl. ; 42 sm Unnið fyrir Landsnet hf. Myndefni: myndir, kort, töflur |
Útdráttur: | Í maí 2008 óskaði Axel V. Birgisson hjá Mannviti hf. eftir því fyrir hönd Landsnets hf. að Náttúrufræðistofnun Íslands gerði áætlun um gerð gróðurkorts og úttektar á háplöntum á svæðum sem hugsanlega yrðu fyrir áhrifum af endurnýjun línulagnar frá Blönduvirkjun til Akureyrar. Vettvangsvinna fór fram í júlí 2008.
Fyrirhuguð línuleið liggur frá Blöndustöð yfir í Vatnsskarð um Skagafjörð yfir Öxnadalsheiði, niður Hörgárdal til Akureyrar og skiptist í sex hluta. Gróður- og landflokkun fór fram með hefðbundnum aðferðum gróðurkortagerðar Náttúrufræðistofnunar þar sem gróður er flokkaður eftir ríkjandi og/eða einkennandi plöntutegundum. Á fyrirhuguðum línustæðum var gróður kortlagður á 300 m belti eftir myndkortum frá Loftmyndum ehf. og innrauðum Spot 5 gervitunglamyndum. Gróðurkortin fylgja með skýrslunni í sérstöku kortahefti, en samandregin gróðurlendakort eru í skýrslunni. Gróðurfari á línuleiðunum er lýst og þess getið ef taka ber sérstakt tilliti til gróðurs við fyrirhugaðar framkvæmdir. Gróðurkortin voru notuð af hönnuðum rafmagnslínunnar við að ákvarða legu hennar og staðsetningu staura (háspennumastra) með tilliti til verndarsjónarmiða. Engin gróðurfélög sem teljast sérstæð á lands- eða héraðsvísu voru kortlögð á línuleiðunum. Samtals voru 203 tegundir háplantna skráðar á fyrirhugaðri línuleið Blöndulínu 3. Flestar tegundirnar sem fundust eru algengar á Norðausturlandi og/eða á landsvísu. Eftirtaldar þrjár tegundir eru flokkaðar sem sjaldgæfar á landsvísu, þ.e. fjallalójurt, haustbrúða og línstör. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
NI-09018.pdf | 8.557Mb |
Skoða/ |
|
NI-09018_kortahefti.pdf | 15.05Mb |
Skoða/ |