dc.contributor | Orkustofnun | is |
dc.contributor.author | Helgi Torfason 1949 | is |
dc.date.accessioned | 2013-12-03T14:56:31Z | |
dc.date.available | 2013-12-03T14:56:31Z | |
dc.date.issued | 2003-12 | |
dc.identifier.isbn | 9789979681434 | |
dc.identifier.isbn | 9979681438 (ób.) | |
dc.identifier.issn | 1670-0120 | |
dc.identifier.uri | http://hdl.handle.net/10802/4089 | |
dc.description | Unnið fyrir Orkustofnun | is |
dc.description | Myndefni: myndir, kort, töflur | is |
dc.description.abstract | Jarðhita á Íslandi hefur margoft verið lýst í skýrslum og greinum. Samantektir yfir dreifingu jarðhita eru einnig margar. Hér er hins vegar sett saman gagnasafn um jarðhita og það tengt við legu jarðhitastaða og svæða í náttúrunni. Gagnasafnið er í tveimur hlutum, annars vegar eru upplýsingar í töflum um hita, rennsli og annað sem tengist jarðhitanum og hins vegar er staðsetning jarðhitans gefin upp í hnitum þannig að unnt er að teikna kort með þar til gerðum forritum, ArcView (ArcInfo, ArcGis).
Til að unnt sé að setja gögn um jarðhita skipulega inn í skrá (þrepaskipt gögn) hefur orðið að skilgreina jarðhitastaði og flokka á ákveðinn hátt. Þar sem jarðhiti er fyrir hendi er yfirleitt fleiri en ein uppspretta á tilteknu svæði. Hér er farin sú leið að uppsprettur á svæði með um 50 m radíus eru teknar saman í svonefndar þyrpingar og eru þyrping einskonar grunneining í töflum sem fylgja þessari skýrslu og grunnur fyrir jarðhitakortið. Þyrpingar eru miðaðar við kort í kvarða 1:50.000. Til að geta sýnt jarðhita á skýran hátt á kortum í kvarða 1:500.000 þarf að sameina þyrpingar í s.n. reiti. Reitur tekur yfir allar þyrpingar sem eru innan flatar með radíus um 500 m. Þessi skýrsla fjallar um reiti, en slík skipting (hringur með um 500 m radíus) fellur vel að korti af öllu landinu í mælikvarða 1:500.000. Númerakerfi það sem notað er fyrir reiti og þyrpingar í þessari skýrslu byggir á skiptingu landsins í kjördæmi eins og þau voru fram til árins 2003. Reitir eru númeraðir með fjögurra stafa tölu á þann hátt að reitir sem hafa 2 (2000, 2001…) sem fyrsta staf í fjögurra stafa tölu eru allir á suðvesturhorni landsins, Vesturland byrjar á 3, Vestfirðir á 4 o.s.frv. Númer reita eru þannig miðuð við númer kjördæma eins og þau voru til ársins 2003. Reitir sem byrja á 9 (9001, 9002…) eru utan kjördæma, þ.e. á hafsbotni undan ströndum landsins (utan netalaga). Þyrpingar fá tvo tölustafi til viðbótar við reitanúmerið, t.d. 2000.01, 2000.02 og nær slíkt númerakerfi yfir allan jarðhita á landi og á sjávarbotni. Þess er óskað að leiðréttingum og/eða viðbótarupplýsingum er varða jarðhita á landi eða í sjó verið komið á framfæri við höfund þessarar skýrslu á Náttúrufræðistofnun Íslands (netfang: heto@ni.is). |
is |
dc.format.extent | 90, 77 s. | is |
dc.language.iso | is | |
dc.publisher | Orkustofnun | is |
dc.publisher | Náttúrufræðistofnun Íslands | is |
dc.relation.ispartofseries | Náttúrufræðistofnun Íslands., Skýrslur ; NÍ-03016 | |
dc.relation.uri | http://www.os.is/gogn/Skyrslur/OS-2003/OS-2003-062.pdf | |
dc.relation.uri | http://utgafa.ni.is/skyrslur/2003/NI-03016.pdf | |
dc.subject | Jarðhiti | is |
dc.subject | Jarðfræði | is |
dc.subject | Gagnasöfn | is |
dc.subject | Ísland | is |
dc.title | Jarðhitakort af Íslandi og gagnasafn um jarðhita | is |
dc.type | Skýrsla | is |
dc.identifier.gegnir | 991000936009706886 |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
OS-2003-062.pdf | 43.48Mb |
Skoða/ |
|
NI-03016.pdf | 43.48Mb |
Skoða/ |