Titill: | Byggðarlög í sókn og vörn : AusturlandByggðarlög í sókn og vörn : Austurland |
Höfundur: | Halldór V. Kristjánsson 1946 ; Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir 1956 |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/3181 |
Útgefandi: | Byggðastofnun |
Útgáfa: | 08.2004 |
Efnisorð: | Atvinnulíf; Austurland |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Skýrsla |
Athugasemdir: | Hér er fjallað um 14 þéttbýlisstaði í 11 sveitarfélögum á Austurlandi. Sveitarfélögin eru Vopnafjarðarhreppur, Skeggjastaðahreppur, Austur-Hérað, Fellahreppur, Borgarfjarðarhreppur, Breiðdalshreppur, Fjarðabyggð, Aust-urbyggð, Djúpavogshreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður og sveitarfélagið Hornafjörður. Þéttbýlisstaðirnir eru Vopnafjörður, Bakkafjörður, Egilsstaðir, Fellabær, Bakkagerði, Breiðdalsvík, Neskaupstaður, Eskifjörður, Reyðarfjörður, Fáskrúðsfjörður, Stöðvarfjörður, Djúpivogur, Seyðisfjörður og Höfn.
Byggt er á viðtölum við bæjar- og sveitarstjóra þessara sveitarfélaga og niðurstöðum úr spurningakönnun sem þeir svöruðu. Viðmælendur voru eftirtaldir: Þorsteinn Steinsson sveitar-stjóri Vopnafjarðarhrepps, Áki Her-mann Guðmundsson oddviti Skeggja-staðahrepps, Stefán Bragason bæjar-ritari og Óðinn Gunnar Óðinsson verkefnisstjóri í Austur-Héraði, Jens Pétur Jensen sveitarstjóri Fellahrepps, Magnús Þorsteinsson sveitarstjóri Borgarfjarðarhrepps, Sigfríður Þor-steinsdóttir sveitarstjóri Breiðdals-hrepps, Guðmundur Bjarnason sveitar-stjóri Fjarðabyggðar, Steinþór Péturs-son sveitarstjóri Austurbyggðar, Björn Hafþór Guðmundsson sveitarstjóri Djúpavogshrepps, Tryggvi Harðarson bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupstaðar og Albert Eymundsson sveitarstjóri sveitarfélagsins Hornafjarðar. Íbúum á Austurlandi hefur fækkað frá árinu 1991. Þeir voru 13.136 árið 1991 en 11.889 árið 2003 eða 9,5% færri. Á sama tíma hefur íbúum á Íslandi fjölgað úr 259.581 í 290.490, eða um 11,9%. Aldursdreifing íbúa árið 2003 á Austfjörðum sýnir að hlutfallslega töluvert færri íbúar eru í yngsta aldurshópnum þ.e. 0-4 ára. Annars er gott jafnvægi í aldurshópunum að 24 ára aldri. Í aldurshópa frá 25 til 34 ára eru hlutfallslega færri karlar og konur en landsmeðaltal, en þessi aldurshópur virðist frekar safnast saman á höfuðborgarsvæðinu en á lands-byggðinni. Í aldurshópum yfir 45 ára eru hlutfallslega færri karlar en konur á Austurlandi árið 2003. Á Austurlandi hefur störfum fækkað um 2,6% á árunum 1998 til 2003, en fjölgað á landsvísu um 7,2% á sama tímabili. Störfum í þjónustugreinum á Austurlandi hefur fjölgað um 5,6% á þessu tímabili, en fjölgað um 14,0% á landsvísu á sama tímabili. Fjölgun starfa í fræðslustarfsemi, opinberri stjórnsýslu og heilbrigðis- og félags-þjónustu vegur ekki upp á móti fækkun starfa í frumvinnslu og verslun og viðgerðaþjónustu. Birtar eru tölulegar upplýsingar um efnahags- og rekstrarstöðu sveitarfélaga miðað við fjölda íbúa, meðal tekju- og fjárhagsstöðu íbúa ásamt stöðu atvinnulífs, fjölda starfa, fiskvinnslu og afla á Austurlandi. Þessar upplýsingar taka til landshlutans í heild en ekki til einstakra sveitarfélaga. Í SVÓT-greiningunni er hins vegar fjallað um einstaka þéttbýlisstaði og sveitarfélög. Niður-staða úr könnun sem gerð var á netinu á eingöngu við um það bæjar- eða sveitarfélag sem viðkomandi bæjar- eða sveitarstjóri starfar fyrir. Því eru tölulegu upplýsingarnar og greiningin ekki byggðar á sama grunni. Hafa ber einnig í huga að erfitt er að alhæfa um landshlutann í heild vegna mismunandi aðstæðna sveitarfélaga. Í öllum landshlutum eru sveitarfélög þar sem atvinnu- og samfélagsþættir standa ágætlega, eins og fram kemur í könnun sem gerð var á netinu samfara þessari greiningu. Fjarðabyggð kemur best út af bæjar- og sveitarfélögum á Austurlandi, einnig þótt tekið sé mið af upplýsingum úr öllum landshlutum varðandi atvinnu- og samfélagsþætti. Margir starfsmenn Byggðastofnunar hafa komið að yfirlestri þessarar skýrslu sem ber að þakka, einnig hefur Gunnar F. Vignisson verkefnisstjóri byggðasviðs Þróunarstofu Austurlands veitt góðar ábendingar. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Austurland-001.pdf | 288.1Kb |
Skoða/ |