#

Fundir og fundargerðir : Að stýra fundi - Ritun fundargerða

Skoða venjulega færslu

dc.contributor.author Magnús Karel Hannesson 1952 is
dc.date.accessioned 2013-07-30T11:56:26Z
dc.date.available 2013-07-30T11:56:26Z
dc.date.issued 2011
dc.identifier.uri http://hdl.handle.net/10802/3140
dc.description Byggt m.a. á ritum Sesselju Árnadóttur Sveitarstjórnarlögin ásamt skýringum og athugasemdum og Gunnars Eydals Sveitarstjórnarréttur – Fundir og fundasköp og leiðbeiningum frá lögfræði- og velferðarsviði sambandsins. is
dc.description.abstract Til þess að fundur geti farið skipulega fram er nauðsynlegt að stuðst sé við fyrirfram ákveðnar reglur – fundarsköp. Það er grundvöllur lýðræðislegrar afgreiðslu á fundum að fundarsköp séu skýr og þau virt. Samkvæmt 25. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998, er sveitarstjórn skylt að setja sér fundarsköp og reglur um stjórn sveitarfélagsins.
Fundarstjóra, oddvita eða nefndarformanni, er falið mikið vald á fundinum. Úrskurð hans og ákvörðun um fundarsköp má þó ætíð bera undir atkvæði fundarmanna.
Meginatriði fundarskapa er að oddviti eða nefndarformaður hafi skýrar reglur til að fara eftir sem jafnframt takmarki vald þeirra til misbeitingar. Samþykkt um stjórn og fundarsköp skal hljóta ítarlega málsmeðferð sveitarstjórnar. Um hana skulu viðhafðar tvær umræður í sveitarstjórn og skal hún send að því loknu innanríkisráðuneytinu til staðfestingar.
Oddviti eða nefndarformaður úrskurða um skilning á fundarsköpum. Slíkir úrskurðir eru sjaldnast formlegir eða skriflegir, heldur munnlegir úrskurðir úr ræðustóli. Skjóta má úrskurði oddvita eða nefndarformanns til úrlausnar sveitarstjórnarinnar eða viðkomandi nefndar. Getur hver og einn fulltrúi sem situr fundinn krafist þess og telja verður að oddvita eða nefndarformanni sé skylt að verða við slíkri ósk fundarmanns. Sætti fundarmaður sig ekki við úrlausn sveitarstjórnar eða nefndar má skjóta slíkum úrskurði til innanríkisráðuneytisins, sbr. 103. gr. sveitarstjórnarlaga.
is
dc.language.iso is
dc.publisher Samband íslenskra sveitarfélaga is
dc.subject Fundarsköp is
dc.subject Sveitarstjórnarmál is
dc.subject Fundir is
dc.subject Sveitarstjórnarlög is
dc.title Fundir og fundargerðir : Að stýra fundi - Ritun fundargerða is
dc.type Skýrsla is


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
fundargerdir_og_ritun.pdf 540.6Kb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða venjulega færslu

Leita


Fletta