dc.contributor.author | Eva Yngvadóttir 1964 | is |
dc.contributor.author | Gyða Mjöll Ingólfsdóttir | is |
dc.contributor.author | Friðrik Gunnarsson | is |
dc.contributor.author | Páll Höskuldsson | is |
dc.date.accessioned | 2013-04-30T11:54:10Z | |
dc.date.available | 2013-04-30T11:54:10Z | |
dc.date.issued | 2013-04 | |
dc.identifier.uri | http://hdl.handle.net/10802/2688 | |
dc.description.abstract | Skýrslan inniheldur niðurstöður umhverfisvöktunar iðnaðarsvæðisins á Grundartanga fyrir árið 2012. Tilgangur
vöktunarinnar er að meta þau áhrif á umhverfið sem starfsemi á iðnaðarsvæðinu veldur. Umhverfisvöktunin 2012 fór fram samkvæmt nýrri umhverfisvöktunaráætlun sem samþykkt er af Umhverfisstofnun fyrir árin 2012 – 2021. Eftirfarandi þættir voru vaktaðir: loftgæði, árvötn, umhverfi flæðigryfja í sjó, gróður, hey og grasbítar. Niðurstöður vöktunar árið 2012 fyrir loftgæði, árvötn, hey og flæðigryfjur leiða í ljós að öll viðmiðunarmörk sem sett eru í starfsleyfum og reglugerðum eru uppfyllt í öllum tilvikum nema einu. Sólarhringsmeðalstyrkur brennisteinstvíoxíðs fór 15 sinnum yfir gróðurverndarmörk og lægri heilsuverndarmörk, en leyfilegt er að fara yfir þau mörk sjö sinnum árlega. Meðalstyrkur flúors í kjálkabeinum sauðfjár hefur hækkað frá 1997 en hins vegar er ekki greinilegt samband á milli tannheilsu sláturfjár og styrk flúors í kjálkabeinum. Auk þess sem áhrif flúors voru ekki greinanleg á tönnum eða liðum lifandi sauðfjár og hrossa. Styrkur flúors mældist í öllum tilvikum undir þolmörkum gróðurs. |
is |
dc.language.iso | is | |
dc.publisher | EFLA verkfræðistofa | is |
dc.subject | Umhverfismat | is |
dc.subject | Grundartangi | is |
dc.title | Umhverfisvöktun iðnaðarsvæðisins á Grundartanga : Niðurstöður fyrir árið 2012 | is |
dc.type | Skýrsla | is |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Umhverfisvoktun_2012_Lokaeintak_rafraent.pdf | 5.410Mb |
Skoða/ |