dc.date.accessioned | 2012-08-24T12:33:33Z | |
dc.date.available | 2012-08-24T12:33:33Z | |
dc.date.issued | 2011 | |
dc.identifier.isbn | 978-9935-436-02-3 | |
dc.identifier.uri | http://hdl.handle.net/10802/2535 | |
dc.description.abstract | Stefna ríkisins í íþróttamálum kemur fram m.a. í íþróttalögum, framlögum á fjárlögum
til íþróttamála og áherslum mennta- og menningarmálaráðherra hverju sinni. Stefna í íþróttamálum er sameiginleg stefnumótun þeirra aðila sem bera ábyrgð á málaflokknum sem eru ríkið, sveitarfélögin og íþróttahreyfingin. Stefna ríkisins í íþróttamálum byggist á því grundvallarsjónarmiði að almennt íþróttastarf á Íslandi skuli skipulagt af frjálsum félagasamtökum. Þar er vísað til Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Ungmennafélags Íslands, sérsambanda, íþróttahéraða, íþróttafélaga og deilda um land allt. Stór hluti landsmanna tekur þátt í þessu starfi á einn eða annan hátt. Hún tekur jafnframt á öllum helstu þáttum íþrótta í félagastarfi og hvernig opinberir aðilar og atvinnulíf geti stutt við það starf. Þá er lögð sérstök áhersla á að auka hreyfingu barna og unglinga á öllum skólastigum. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á nauðsyn þess að bæta lífsstíl fólks og gegnir skólakerfið þar af leiðandi hlutverki í að hafa áhrif á hreyfingu og þekkingu á gildi íþrótta. Við mótun stefnunnar var horft til framtíðar og tekið mið af því sem áunnist hefur á undanförnum árum. Sett eru fram skýr markmið og bent á leiðir til að framfylgja þeim. Stefna þessi gildir frá 2010 – 2015 og verður hún þá endurmetin. |
is |
dc.language.iso | is | |
dc.publisher | Mennta- og menningarmálaráðuneytið | is |
dc.subject | Stefnumótun | is |
dc.subject | Íþróttir | is |
dc.title | Stefnumótun mennta- og menningarmálaráðuneytis í íþróttamálum | is |
dc.type | Skýrsla | is |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
stefnum_ithrottam_2011.pdf | 2.828Mb |
Skoða/ |