dc.contributor.author | Þingmannanefnd um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis | is |
dc.date.accessioned | 2011-11-29T11:59:04Z | |
dc.date.available | 2011-11-29T11:59:04Z | |
dc.date.issued | 2010-09 | |
dc.identifier.uri | http://hdl.handle.net/10802/2208 | |
dc.description | Umrædd þingmannanefnd var kosin á
Alþingi 30. desember 2009 og er hún skipuð þingmönnum úr öllum þingflokkum. Nefndina skipa Atli Gíslason formaður (Vg), Unnur Brá Konráðsdóttir varaformaður (S), Birgitta Jónsdóttir (H), Eygló Harðardóttir (F), Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg), Magnús Orri Schram (Sf), Oddný G. Harðardóttir (Sf), Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) og Sigurður Ingi Jóhannsson (F). Margrét Tryggvadóttir (H) starfaði með nefndinni í forföllum Birgittu Jónsdóttur. |
is |
dc.description.abstract | Þrír stærstu bankarnir féllu og ríkið yfirtók reksturinn. Í kjölfar þessara atburða samþykkti
Alþingi að setja á fót sérstaka nefnd til þess að rannsaka bankahrunið, aðdraganda þess og orsakir sem og tengda atburði. Til rannsóknarnefndarinnar var stofnað með lögum nr. 142/ 2008, um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða, og til starfans voru fengnir óháðir sérfræðingar, dr. Páll Hreinsson hæstaréttardómari, Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, og dr. Sigríður Benediktsdóttir, hagfræðingur og kennari við Yale-háskóla í Bandaríkjunum. Hlutverk rannsóknarnefndarinnar var að varpa ljósi á ástæður bankahrunsins haustið 2008, greina orsakir þess og fjalla um og leggja mat á hvort um mistök eða vanrækslu hafi verið að ræða við framkvæmd laga og reglna um fjármálastarfsemi á Íslandi og eftirlit með henni. Eins átti hún að leggja mat á það hver kynni að bera ábyrgð á mistökum sem gerð voru og kanna hvort nokkur hefði sýnt af sér vanrækslu í störfum sínum. Að auki var það hlutverk nefndarinnar að afla upplýsinga um starfsemi hinna föllnu fjármálafyrirtækja og gera úttekt á reglum íslenskra laga um fjármálamarkað, skoða hvernig eftirliti með fjármálastarfsemi var háttað á árunum fyrir hrunið auk þess að vekja athygli hlutaðeigandi yfirvalda á málum þar sem grunur vaknaði um refsiverða háttsemi eða brot á starfsskyldum. Við lok vinnu sinnar gaf rannsóknarnefndin út skýrslu þar sem rökstuddar eru niðurstöður hennar ásamt ábendingum og tillögum um úrbætur. Þá skipaði forsætisnefnd einnig sérstakan vinnuhóp til að leggja mat á hvort skýringar á falli íslensku bankanna mætti rekja til starfshátta og siðferðis. Þann hóp skipuðu Vilhjálmur Árnason, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands, Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, og Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisráðs. Skilaði hópurinn niðurstöðu sinni í skýrslu sem finna má í viðauka 1 við rannsóknarskýrsluna. |
is |
dc.language.iso | is | |
dc.publisher | Alþingi | is |
dc.relation.ispartofseries | 138. löggjafarþing 2009-2010 ; Þskj. 1501 - 705. mál. | |
dc.subject | Rannsóknarnefnd Alþingis 2008 | is |
dc.subject | Alþingi | is |
dc.subject | Bankahrunið 2008 | is |
dc.title | Skýrsla þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis | is |
dc.type | Skýrsla | is |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
1501.pdf | 27.26Mb |
Skoða/ |