Titill: | Effect of cooling and packaging methods on the quality deterioration of redfish filletsEffect of cooling and packaging methods on the quality deterioration of redfish fillets |
Höfundur: | Lauzon, Hélén ; Aðalheiður Ólafsdóttir ; Magnea G. Karlsdóttir ; Eyjólfur Reynisson 1977 ; Björn Margeirsson 1979 ; Sigurjón Arason 1950 ; Emilía Martinsdóttir 1949 |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/2051 |
Útgefandi: | Matís |
Útgáfa: | 09.2011 |
Ritröð: | Skýrsla Matís ; 27-11 |
Efnisorð: | Karfi; ; Kæling; ; Gæðaeftirlit; Geymsla matvæla; Örverur; Rotnun |
ISSN: | 1670-7192 |
Tungumál: | Enska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Markmið tilraunarinnar var að meta áhrif krapaískælingar eftir flökun
og/eða pökkun í lofttæmdar umbúðir á gæðarýrnun ferskra karfaflaka. Flökin voru geymd við ‐1 °C í 6 daga til að herma eftir vel útfærðum sjóflutningi í frauðplastkössum og svo við 2 °C líkt og gerist eftir afhendingu erlendis og geymslu í smásölu. Fylgst var með vöruog umhverfishitastigi frá pökkun og framkvæmt skynmat, örveru‐ og efnamælingar. Fiskurinn var veiddur að vorlagi og unninn 6 dögum eftir veiði. Niðurstöður sýna að gæði hráefnisins voru ekki sem best við pökkun þar sem þránunarferli (PV og TBARS) var komið vel af stað. Þetta skýrir væntanlega hvers vegna engin af þessum kæliaðferðum leiddi til geymsluþolsaukningar. Einnig kom í ljós að enginn ávinningur fékkst við að kæla flökin óvarin í krapaís þar sem örveruvöxtur og myndun TVB‐N og TMA í flökunum gerðist hraðar við frekari geymslu. Hins vegar virðist vera ákjósanlegra að kæla lofttæmd pökkuð flök í krapaís því þessi aðferð leiddi til hægari vaxtar skemmdarörvera, lægra magns TMA og hægara þránunarferlis. Photobacterium phosphoreum er mikilvæg í skemmdarferli ferskra karfaflaka, óháð pökkunaraðferð. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
27-11Karfatilraun-Mai-2010.pdf | 579.4Kb |
Skoða/ |