dc.contributor.author |
Rannveig Oddsdóttir 1973 |
is |
dc.contributor.author |
Halldóra Haraldsdóttir 1951 |
is |
dc.contributor.author |
Jenný Gunnbjörnsdóttir 1965 |
is |
dc.date.accessioned |
2019-12-16T14:19:56Z |
|
dc.date.available |
2019-12-16T14:19:56Z |
|
dc.date.issued |
2018 |
|
dc.identifier.uri |
http://hdl.handle.net/10802/19566 |
|
dc.description |
Rafræn útgáfa eingöngu |
is |
dc.description.abstract |
Núgildandi menntastefna á Íslandi, sem birt er í aðalnámskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla, er reist á sex grunnþáttum menntunar sem byggjast á því viðhorfi að menntun hafi bæði gildi fyrir einstaklinginn sjálfan og samfélagið. Grunnþættirnir eru: læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun. Þeir eiga að vera leiðarljós í skólastarfi frá leikskóla til framhaldsskóla og fléttast inn í allar námsgreinar. Barnabókmenntir geta opnað sýn inn á ólík svið samfélags og umhverfis og gefa tækifæri til að vinna með þau atriði sem falla undir grunnþætti menntunar. Í þessari grein er fjallað um niðurstöður rannsóknar á því hvernig grunnþættir menntunar birtast í vinnu út frá barnabókum í 1. og 2. bekk í skólum sem nota kennsluaðferðina Byrjendalæsi. Rannsóknargögn voru sótt í gagnagrunn sem til varð í umfangsmikilli rannsókn á Byrjendalæsi á árunum 2013–2015. Gögnin sem unnið var með eru úr vettvangsathugunum í sex skólum sem nota Byrjendalæsi, viðtölum við kennara í sömu skólum og kennsluáætlunum fyrir þær vikur þegar vettvangsathuganirnar fóru fram. Í kennsluaðferðinni Byrjendalæsi eru barnabækur notaðar á markvissan hátt í læsiskennslu og sýndu niðurstöðurnar að í Byrjendalæsisvinnunni gáfust einnig tækifæri til að vinna með grunnþættina sex út frá efni bókanna. Í mörgum tilvikum nýttu kennarar þessi tækifæri vel. Unnið var með læsi á fjölbreyttan hátt út frá bókunum, sköpun skipaði mikilvægan sess í náminu og dæmi voru um umræður sem tengja mátti lýðræði og mannréttindum og heilbrigði og velferð. Færri dæmi voru um beina vinnu með grunnþættina jafnrétti og sjálfbærni... |
is |
dc.language.iso |
is |
|
dc.relation.ispartof |
Bókmenntir, listir og grunnþættir menntunar : 2018 |
is |
dc.relation.ispartof |
991011532559706886 |
|
dc.relation.uri |
http://netla.hi.is/serrit/2018/bokmenntir_listir_menntun/08.pdf |
|
dc.subject |
Ritrýndar greinar |
is |
dc.subject |
Kennsluaðferðir |
is |
dc.subject |
Læsi |
is |
dc.subject |
Barnabókmenntir (umfjöllun) |
is |
dc.title |
Barnabókmenntir í skólastarfi : byrjendalæsi og grunnþættir menntunar |
is |
dc.type |
Bók |
is |
dc.identifier.gegnir |
991011537919706886 |
|