#

Niðurstöður kornastærðarmælinga á áreyrasýnum frá Þjórsá milli Sóleyjarhöfða og Svartár

Skoða fulla færslu

Titill: Niðurstöður kornastærðarmælinga á áreyrasýnum frá Þjórsá milli Sóleyjarhöfða og SvartárNiðurstöður kornastærðarmælinga á áreyrasýnum frá Þjórsá milli Sóleyjarhöfða og Svartár
Höfundur: Jórunn Harðardóttir 1968 ; Orkustofnun. Vatnamælingar. ; Landsvirkjun
URI: http://hdl.handle.net/10802/19356
Útgefandi: Orkustofnun
Útgáfa: 2003
Ritröð: OS ;
Efnisorð: Sýnataka; Kornastærðargreining; Þjórsá; Sóleyjarhöfði; Norðlingaalda; Svartá (Rangárvallasýsla); Eyvafen; Vhm 100 (vatnshæðarmælir)
Tungumál: Íslenska
Tengd vefsíðuslóð: http://www.os.is/gogn/Skyrslur/OS-2003/OS-2003-055.pdf
Tegund: Bók
Gegnir ID: 991010385849706886
Athugasemdir: Unnið af Vatnamælingum Orkustofnunar fyrir Landsvirkjun.Myndefni: myndir, línurit.
Útdráttur: Í þessari skýrslu er fjallað um kornastærðargreiningar á 40 áreyrarsýnum sem tekin voru þann 24. júní 2003 í Þjórsá milli Sóleyjarhöfða og Svartár. Sýnin voru tekin ýmist ástreymis, hlémegin eða nálægt miðri eyri. Efnið í áreyrunum er aðallega möl og sandur og eru sýnin sem tekin voru ástreymis, heldur grófari en sýnin sem tekin voru hlémegin á áreyrunum sérstaklega í efstu sýnunum nálægt Sóleyjarhöfða. Fyrir neðan Eyvafen eru áreyrarnar töluvert grófari með steinum og hnullungum allt að 1 m í þvermál, en þar sem grófasta efninu var ekki safnað eru afleiddir kornastærðareiginleikar s.s. meðalstærð, ekki mjög frábrugðnir fyrir þessi sýni miðað við sýni ofar í ánni. Fyrir neðan Eyvafen er jarðgrunnurinn annar en þar fyrir ofan; miklir jökulruðningsflákar með misgrófu efni sem útskýrir að öllum líkindum grófleika áreyranna á þessu svæði.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða Lýsing
OS-2003-055.pdf 2.731Mb PDF Skoða/Opna Heildartexti

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta