Titill:
|
„GÆSin mín og GÆSin þín, Egils malt og appelsín“ : orðræðan um kaffihúsið GÆS„GÆSin mín og GÆSin þín, Egils malt og appelsín“ : orðræðan um kaffihúsið GÆS |
Höfundur:
|
Ágústa Rós Björnsdóttir 1977
;
Jón Ingvar Kjaran 1974
|
URI:
|
http://hdl.handle.net/10802/18647
|
Útgáfa:
|
2019 |
Efnisorð:
|
Ritrýndar greinar; Atvinnuþátttaka; Þroskahamlaðir; Mannréttindi; Orðræðugreining; GÆS (kaffihús)
|
Tungumál:
|
Íslenska
|
Tengd vefsíðuslóð:
|
http://netla.hi.is/greinar/2019/ryn/06.pdf
|
Tegund:
|
Tímaritsgrein |
Gegnir ID:
|
991011377809706886
|
Birtist í:
|
Netla 2019
|
Athugasemdir:
|
Rafræn útgáfa eingöngu |
Útdráttur:
|
Fólk með þroskahömlun hefur í gegnum tíðina verið jaðarsettur hópur og átt fá tækifæri til atvinnuþátttöku á almennum vinnumarkaði. Árið 2013 stofnuðu fimm nemendur í starfstengdu diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun við Háskóla Íslands kaffihúsið GÆS í starfsnámi sínu. Rannsóknin sem hér er til umfjöllunar hafði það að markmiði að draga fram og greina þá orðræðu sem skapaðist í samfélaginu um kaffihúsið GÆS en það hlaut mikla umfjöllun á frétta- og vefmiðlum. Auk þess var leitast við að fá fram með hvaða hætti orðræðan um GÆS mótaði reynslu stofnfélaganna fimm og í því skyni voru tekin einstaklings- og rýnihópaviðtöl við þau. Gögnin voru greind með orðræðugreiningu og þemagreiningu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að orðræðan um GÆS hafi einkennst af jákvæðni í garð hópsins sem stóð að kaffihúsinu og birtist hún meðal annars í því að fjölmiðlar og almenningur sýndi kaffihúsinu mikinn áhuga og velvild. Í mótsögn við ofangreinda orðræðu litaðist orðræðan einnig af staðalmyndum um fólk með þroskahömlun sem byggjast meðal annars á því að líta á fólkið sem eilíf börn. Þessar hugmyndir leiddu til þess að fram komu ýmsar efasemdir um getu hópsins til að reka kaffihús og átti það stóran þátt í að rekstrinum var hætt. Jafnframt var stofnfélögunum fimm lýst sem ofurhetjum, snillingum og dugnaðarforkum á samfélagsmiðlum. Þó að orðræðan hafi á stundum virst viðhalda staðalmyndum um fólk með þroskahömlun má álykta að GÆS hafi átt þátt í að opna umræðuna um dugnað og hæfileika fólks með þroskahömlun og átt þátt í að breyta viðhorfum til hópsins. |