dc.contributor.author |
Þuríður Jóhannsdóttir 1952 |
is |
dc.contributor.author |
Amalía Björnsdóttir 1966 |
is |
dc.date.accessioned |
2019-08-22T14:05:12Z |
|
dc.date.available |
2019-08-22T14:05:12Z |
|
dc.date.issued |
2018 |
|
dc.identifier.uri |
http://hdl.handle.net/10802/18504 |
|
dc.description |
Rafræn útgáfa eingöngu |
is |
dc.description.abstract |
Minnkandi aðsókn að kennaranámi og skortur á kennurum veldur talsverðum áhyggjum. Fyrir um aldarfjórðungi var farið í átak til að fjölga réttindakennurum en hlutfall leiðbeinenda hafði verið hátt, einkum á landsbyggðinni. Farið var að bjóða upp á fjarnám og samið var við kennaramenntunarstofnanir um að taka við fleiri nemum. Hlutfall leiðbeinenda lækkaði í kjölfarið og einnig varð efnahagshrunið 2008 til þess að kennarar sneru aftur til starfa í grunnskólum. Nú hefur hlutfall leiðbeinenda hækkað að nýju og óttast er að fjöldi útskrifaðra grunnskólakennara með réttindi haldi engan veginn í við þann fjölda sem hættir störfum, meðal annars vegna aldurs. Brottfall úr grunnskólakennaranámi og hæg námsframvinda veldur einnig áhyggjum. Í þessari rannsókn er dregin upp mynd af bakgrunni grunnskólakennaranema við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og kannað hvort munur sé á fjar- og staðnemum. Niðurstöður benda til þess að fjarnemar eigi síður háskólamenntaða foreldra en staðnemar og að börn kennara fari frekar í staðnám en fjarnám. Svipað hlutfall fjarnema og staðnema vinnur með námi en fjarnemar vinna mun fleiri tíma á viku. Til að mynda vinna 42% þeirra meira en 30 tíma á viku meðan hið sama á við um 4,5% staðnema. Það hvort nemar eru í stað- eða fjarnámi tengist ekki aðdráttarafli kennarastarfsins en hversu ánægðir þeir eru með bæði námskeið í uppeldis- og kennslufræði og kennslufræði greina tengist aðdráttaraflinu, og þættir sem tengjast vettvangsnámi skipta miklu máli. Þetta er í takt við fyrri rannsóknir um mikilvægi þeirrar reynslu sem kennaranemar fá í starfi með námi og í æfingakennslu. |
is |
dc.language.iso |
is |
|
dc.relation.ispartof |
Netla 2018 |
is |
dc.relation.ispartof |
991007205689706886 |
|
dc.relation.uri |
https://doi.org/10.24270/netla.2018.11 |
|
dc.subject |
Ritrýndar greinar |
is |
dc.subject |
Kennaramenntun |
is |
dc.subject |
Grunnskólakennarar |
is |
dc.subject |
Áhugahvöt |
is |
dc.title |
Staðnemar og fjarnemar í grunnskólakennaranámi við Menntavísindasvið : bakgrunnur, viðhorf og áhugi á að starfa við kennslu |
is |
dc.type |
Tímaritsgrein |
is |
dc.identifier.gegnir |
991011339499706886 |
|