#

Áhrif Royaumont-málþingsins 1959 á íslenskt námsefni í stærðfræði fyrir börn

Skoða venjulega færslu

dc.contributor.author Kristín Bjarnadóttir 1943 is
dc.date.accessioned 2018-10-10T13:37:32Z
dc.date.available 2018-10-10T13:37:32Z
dc.date.issued 2018
dc.identifier.uri http://hdl.handle.net/10802/16628
dc.description Rafræn útgáfa eingöngu is
dc.description.abstract Málþing var haldið árið 1959 í Royaumont, Frakklandi, um nýja hugsun um skólastærðfræði. Royaumont-málþingið olli nokkrum straumhvörfum í hugsun um skólastærðfræði og rannsóknum á því sviði. Nýjar hugmyndir um skólastærðfræði, sem ræddar voru þar, voru nefndar nýja stærðfræðin, New Math, og tengdust hreyfingu, kenndri við Bourbaki, um endurskoðun á framsetningu stærðfræði með nútímalegum hætti, mathematique moderne. Í kjölfar málþingsins var tekið upp norrænt samstarf um greiningu á stöðu stærðfræðimenntunar á Norðurlöndum, námskrárgerð og samningu kennslubóka í tilraunaskyni. Stofnuð var nefnd, Nordiska kommittén för modernisering av matematikundervisningen, NKMM, sem stóð fyrir vinnu að verkinu á árunum 1960–1967. Megináhersla norrænu nefndarinnar var á námsefni fyrir 7 –12. bekk og ætlunin var að efnið yrði hægt að þýða og staðfæra í hverju landi fyrir sig. Einnig voru ráðnir sérfræðingar um námsefni 1.–6. bekkjar. Danskur höfundur, Agnete Bundgaard, og finnsk samstarfskona hennar, Eeva Kyttä, voru ráðnar til að rita kennslubókaflokk fyrir tvö fyrstu árin frá sjö ára aldri og Agnete Bundgaard ritaði ein kennslubækur fyrir næstu fjögur aldursstig. Flokkurinn var þýddur á íslensku frá og með 1966. Kennslubókaflokkur þessi, sem oft er nefndur Bundgaard-námsefnið, er greindur með tilliti til tillagna, sem settar voru fram á Royaumont-málþinginu um námsefni í stærðfræði fyrir barnaskóla, og borinn saman við eldra og yngra námsefni... is
dc.language.iso is
dc.relation.ispartof Netla 2018 is
dc.relation.ispartof 991007205689706886
dc.relation.uri http://netla.hi.is/greinar/2018/ryn/09.pdf
dc.subject Ritrýndar greinar is
dc.subject Stærðfræði (námsgrein) is
dc.subject Námsefni is
dc.subject Skólaþróun is
dc.subject Royaumont-málþingið is
dc.title Áhrif Royaumont-málþingsins 1959 á íslenskt námsefni í stærðfræði fyrir börn is
dc.type Tímaritsgrein is
dc.identifier.gegnir 991010182159706886


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða Lýsing
09.pdf 952.3Kb PDF Skoða/Opna Heildartexti

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða venjulega færslu

Leita


Fletta