#

Veiðar, flokkun, vinnsla og markaðir fyrir makríl veiddan af uppsjávarskipum

Skoða venjulega færslu

dc.contributor.author Ragnheiður Sveinþórsdóttir is
dc.date.accessioned 2011-09-05T14:46:14Z
dc.date.available 2011-09-05T14:46:14Z
dc.date.issued 2011-03
dc.identifier.issn 1670-7192
dc.identifier.uri http://hdl.handle.net/10802/1538
dc.description.abstract Árið 2005 var fyrst skráður makrílafli í íslenskri lögsögu þó að íslensk skip hafi ekki byrjað að veiða makríl markvisst fyrr en árið 2007, makrílveiðar jukust hratt en árið 2009 voru heimildir til makrílveiða fyrst takmarkaðar. Á þessum árum hefur aflinn farið úr 232 tonnum í 121 þúsund tonn. Fyrst í stað fór aflinn allur í bræðslu en árið 2010 frystu Íslendingar 60% af aflanum til manneldis.

Í þessari skýrslu er fjallað um veiðar og vinnslu á makríl, búnað sem þarf fyrir makrílvinnslu til manneldis, meðhöndlun afla, mælingar á makríl sem veiðist í íslenskri lögsögu og markaði. Í verkefninu var sýnum safnað og þau formmæld, kyngreind og fituinnihald mælt.

Á sumrin gengur makríll í íslenska lögsögu og veiðist þá með síld en báðar tegundir eru veiddar í flotvörpu. Þegar makríll er unninn til manneldis er hann hausaður og slægður en til að það sé hægt þarf auk hefðbundinnar vinnslulínu svokallaða sugu sem sýgur slógið innan úr makrílnum. Einnig þarf makríll lengri frystitíma en síld vegna þess hve sívalningslaga hann er. Makríllinn sem gengur inn í íslenska lögsögu er oft 35‐40 cm langur og milli 300 og 600 g þungur. Helstu markaðir fyrir sumarveiddan makríl sem veiddur er hér við land eru í Austur‐Evrópu en þar er hann áfram unninn í verðmætari afurðir.
is
dc.language.iso is
dc.publisher Matís is
dc.relation.ispartofseries Skýrsla Matís ; 04-11
dc.subject Makríll is
dc.subject Veiðar is
dc.subject Flokkun is
dc.subject Vinnsla is
dc.subject Markaðir is
dc.title Veiðar, flokkun, vinnsla og markaðir fyrir makríl veiddan af uppsjávarskipum is
dc.title.alternative Fishing, grading, processing and marketing of mackerel catched by pelagic vessels en
dc.type Skýrsla is


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
04-11-Makrill-veidar-og-vinnsla-.pdf 4.126Mb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða venjulega færslu

Leita


Fletta