#

Functionality testing of selected Chill‐on technologies during a transport‐simulation study of palletized cod boxes: qPCR for fish spoilage bacteria, SLP model and QMRA to evaluate pathogen growth in spiked cod

Skoða fulla færslu

Titill: Functionality testing of selected Chill‐on technologies during a transport‐simulation study of palletized cod boxes: qPCR for fish spoilage bacteria, SLP model and QMRA to evaluate pathogen growth in spiked codFunctionality testing of selected Chill‐on technologies during a transport‐simulation study of palletized cod boxes: qPCR for fish spoilage bacteria, SLP model and QMRA to evaluate pathogen growth in spiked cod
Höfundur: Lauzon, Hélene L. ; Björn Margeirsson 1979 ; Kolbrún Sveinsdóttir ; Eyjólfur Reynisson 1977 ; María Guðjónsdóttir ; Emilía Martinsdóttir 1949 ; Gospavic, Radovan ; Haque, Nasimul ; Popov, Viktor ; Guðrún Ólafsdóttir ; Tómas Hafliðason 1977 ; Einir Guðlaugsson 1984 ; Sigurður Bogason
URI: http://hdl.handle.net/10802/1520
Útgefandi: Matís
Útgáfa: 11.2010
Ritröð: Skýrsla Matís ; 35-10
Efnisorð: Þorskur; Geymsluþolsspá; Öryggi; qPCR; Hitastigsstýring; Undirkæling; Sjóflutningar
ISSN: 1670-7192
Tungumál: Enska
Tegund: Skýrsla
Útdráttur: Í þessari rannsókn voru gerðar prófanir á tæknilausnum sem þróaðar
voru í EU verkefninu Chill‐on þar sem sett var upp hermitilraun til að
líkja eftir raunverulegum flutningum á fiski frá Íslandi til Evrópu.
Hitastigssveiflur, sem fiskurinn varð fyrir, miðuðu að því að herma eftir
flutningi frá Íslandi til Frakklands með skipi. Bretti af þorskhnökkum í
frauðplastkössum voru flutt til Vestmannaeyja með skipi og til baka aftur
til Matís í Reykjavík. Sýni úr þessum brettum voru síðan borin saman við
samanburðarsýni sem geymd höfðu verið við undirkældar aðstæður hjá
Matís. Þorskhnökkum var jafnframt pakkað í neytendapakkningar
(bakka) strax eftir vinnslu og síðan eftir 6 daga og voru geymdir við
undirkældar eða kældar aðstæður. Einnig voru gerðar
örveruvaxtartilraunir þar sem Listeria monocytogenes, Escherichia coli og
Salmonella Dublin var bætt út í þorskhnakka sem geymdir voru í
frauðplastkössum við aðstæður sem líktust geymslu‐ og flutningsferli við
útflutning. Hitastigsmælingar, skynmat, örveru‐ og efnafræðilegar
mælingar voru notaðar til að setja fram gögn til að prófa og sannreyna
QMRA/SLP líkönin og magngreiningu á Pseudomonas bakteríum með
qPCR tækni.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
35-10-Wet-trials-Dec09-storage-study.pdf 1.209Mb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta