Titill: | Sprautun og pæklun tilapíuflakaSprautun og pæklun tilapíuflaka |
Höfundur: | Kristín Anna Þórarinsdóttir 1971 ; Kolbrún Sveinsdóttir 1974 ; Þóra Valsdóttir 1976 ; Irek Klonowski ; Aðalheiður Ólafsdóttir ; Hannes Magnússon 1952 ; Arnljótur Bjarki Bergsson 1977 ; Ragnar Jóhannsson 1956 ; Emilía Martinsdóttir 1949 |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/1493 |
Útgáfa: | 12.2009 |
Ritröð: | Skýrsla Matís ; 39-09 |
Efnisorð: | Fiskiðnaður; Fiskur; ; Salt; ; Skynmat; Geymsla matvæla |
ISSN: | 1670-7192 |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Markmið verkefnisins var að kanna áhrif sprautunar og pæklunar á
nýtingu, geymsluþol og eiginleika tilapiuflaka. Framleiddir voru þrír afurðaflokkar: kældar afurðir, frystar afurðir (með óverulegum breytingum á saltinnihaldi) og léttsaltaðar, frystar afurðir. Við vinnslu kældra afurða voru flök með roði sprautuð með daufum pækli (1% salt) sem innihélt smækkaðan þorskmarning (2% prótein í pækli). Léttsöltuð flök voru í upphafi sprautuð með 4% saltpækli, síðan pækluð yfir nótt. Hluti flaka var frystur eftir pæklun en sambærilegt magn sprautað með próteinlausninni eftir pæklun. Nýting jókst við sprautun og pæklun, verulegur munur var þyngdarbreytingum á frystum flökum og léttsöltuðum flökum vegna mismunar í saltinnihaldi þessara tveggja afurðaflokka. Vatnsheldni flaka var lakari eftir frystingu heldur en eftir geymslu í kæli. Geymsluþol afurða var stutt og eru mögulegar ástæður fyrir því ræddar í skýrslunni. Örveruvöxtur og niðurbrotsferlar voru að mestu óháð sprautun og pæklun. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Skyrsla_39-09.pdf | 1.100Mb |
Skoða/ |