Titill: | The effect of liquid cooling at processing and different cooling techniques during transport of cod (Gadus morhua) filletsThe effect of liquid cooling at processing and different cooling techniques during transport of cod (Gadus morhua) fillets |
Höfundur: | Hannes Magnússon 1952 ; Lárus Þorvaldsson ; Kolbrún Sveinsdóttir ; Lauzon, Hélene L. ; Kristín Anna Þórarinsdóttir 1971 ; Sigurjón Arason ; Emilía Martinsdóttir 1949 |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/1489 |
Útgefandi: | Matís |
Útgáfa: | 11.2009 |
Ritröð: | Skýrsla Matís ; 34-09 |
Efnisorð: | Þorskflök; Kælitækni; Hitasveiflur; Ferskleiki; Geymsluþol |
ISSN: | 1670-7192 |
Tungumál: | Enska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Tilgangur tilraunanna var að kanna áhrif mismunandi kælitækni og áhrif
hitasveiflna á gæði og geymsluþol þorskflaka. Eftirfarandi kælitækni var könnuð: Vökvakæling í pækli við vinnslu miðað við enga kælingu og áhrif hitasveiflna við geymslu í samanburði við stöðugt hitastig (-1°C). Auk þess voru könnuð áhrif þess að nota annars vegar ísmottur og hins vegar þurrís við geymslu flakanna. Fylgst var með breytingum á hitastigi með hitanemum á öllum stigum. Sýni voru gæðametin með skynmati, örveru- og efnamælingum í allt að 14 daga frá veiði (11 daga frá vinnslu og pökkun). Mismunandi meðhöndlun leiddi til mismunandi ferskleikatíma og geymsluþols samkvæmt skynmati. Hópar sem voru vökvakældir við vinnslu höfðu um 2-3 daga skemmra geymsluþol en flök sem ekki voru kæld á þennan hátt. Rekja mátti ástæður þessa til þess að kælipækillinn innihélt töluvert magn örvera m.a. skemmdargerilinn Photobacterium phosphoreum sem er mjög virkur framleiðandi á trímetýlamíni (TMA). Samanburður á vökvakældu flökunum sýndi að notkun á þurrís lengdi geymsluþol um 1-2 daga í samanburði við ísmottur. Geymsla við -1°C hafði ekki merkjanleg áhrif á ferskleikatíma og geymsluþol í samanburði við flök þar sem hitasveiflum var beitt samkvæmt skynmati. Niðurstöður örveru- og efnamælinga voru í samræmi við þessar niðurstöður. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Skyrsla_34-09.pdf | 2.118Mb |
Skoða/ |