Titill: | Umbætur í virðiskeðju matvæla. SamantektUmbætur í virðiskeðju matvæla. Samantekt |
Höfundur: | Þóra Valsdóttir ; Hlynur Stefánsson ; Emil B. Karlsson ; Óli Þór Hilmarsson ; Einar Karl Þórhallsson ; Jón Haukur Arnarson ; Sveinn Margeirsson ; Ragnheiður Héðinsdóttir |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/1485 |
Útgefandi: | Matís |
Útgáfa: | 03.2010 |
Ritröð: | Skýrsla Matís ; 07-10 |
Efnisorð: | Virðiskeðja; Vörustjórnun; Birgðastjórnun; Sóun; Matvæli |
ISSN: | 1670-7192 |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Vitað er að mikil sóun á sér stað í virðiskeðju matvæla. Orsakir eru
margar, s.s. röng vörustjórnun, röng meðferð, rofin kælikeðja eða ófullnægjandi kæling á einhverju stigi, rofnar umbúðir og ótal margt fleira. Matvælaframleiðendur og smásalar telja að verulega megi draga úr slíkri sóun með samstilltu átaki allra sem koma að virðiskeðjunni. Þannig mætti lækka verð á matvælum umtalsvert. Markmið verkefnisins var að greina hvar í virðiskeðju matvæla rýrnun á sér stað og skilgreina aðgerðir til að lágmarka sóun sem af rýrnuninni hlýst. Lögð var áhersla á virðiskeðju eins flokks matvæla: kældar kjötvörur. Of mikil eða röng framleiðsla og umframbirgðir á viðkvæmum vörum voru greind sem ein megin orsök sóunar. Röng vörumeðhöndlun og vörustjórnun skipta einnig miklu máli. Þróuð var frumgerð að upplýsingakerfi til að bæta framleiðslustýringu og minnka birgðakostnað í virðiskeðjunni. Niðurstöður verkefnisins benda til þess að vönduð og öguð vinnubrögð í allri virðiskeðjunni og gott upplýsingaflæði milli birgja og smásala feli í sér geysimikla möguleika til hagræðingar, ekki síst á sviði vörustjórnunar. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
07-10-Umbaetur- ... dju-matvaela-Samantekt.pdf | 819.9Kb |
Skoða/ |