Titill: | Umbætur í virðiskeðju matvæla. Kortlagning á ferli vöru og vörustýringu.Umbætur í virðiskeðju matvæla. Kortlagning á ferli vöru og vörustýringu. |
Höfundur: | Þóra Valsdóttir ; Jón Haukur Arnarson ; Óli Þór Hilmarsson ; Hlynur Stefánsson |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/1484 |
Útgefandi: | Matís |
Útgáfa: | 03.2010 |
Ritröð: | Skýrsla Matís ; 08-10 |
Efnisorð: | Virðiskeðja; Vörustjórnun; Birgðastjórnun; Sóun; Matvæli |
ISSN: | 1670-7192 |
Tungumál: | Íslenska |
Tegund: | Skýrsla |
Útdráttur: | Þessi skýrsla tekur fyrir fyrsta hluta verkefnisins Umbætur í
virðiskeðju matvæla sem hefur það að meginmarkmiði að greina hvar í virðiskeðju matvælarýrnun á sér stað og skilgreina aðgerðir til að lágmarka sóun sem af rýrnuninni hlýst. Í þessum fyrsta hluta var lögð áhersla á greiningu/kortlagningu á ferli vöru og vörustýringu og var honum skipt upp í þrjá verkþætti sem unnir voru samhliða. Öll þáttökufyrirtækin voru heimsótt. Farið var yfir verkferla hjá fyrirtækjunum, aðstaða þeirra skoðuð og álit fengið um það hvað betur má fara í ferli kældra kjötvara út fá þeirra sjónarhóli. Kannað var hvers konar upplýsingar fyrirtækin hafa um vörurnar, á hvaða formi þær eru og hvernig þær eru nýttar. Þá var skoðað hvaða upplýsingar berast milli hlekkja í virðiskeðjunni, hvernig þær berast og hvaða upplýsingar/gögn frá öðrum hlekkjum geta hjálpað viðkomandi aðila til betri stýringar á óþarfa rýrnun. Í framhaldi af þessari vinnu var gerð greining á þeim þáttum sem þóttu mikilvægastir og tillögur mótaðar um úrbætur varðandi verklag, upplýsingar, mælingar ofl. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
08-10-Umbaetur- ... i-voru-og-vorustyringu.pdf | 245.8Kb |
Skoða/ |