#

Matarumhverfi við íþróttaiðkun barna : rannsóknarverkefni

Skoða fulla færslu

Titill: Matarumhverfi við íþróttaiðkun barna : rannsóknarverkefniMatarumhverfi við íþróttaiðkun barna : rannsóknarverkefni
Höfundur: Birna Varðardóttir 1994 ; Elísabet Margeirsdóttir 1985 ; Steingerður Ólafsdóttir 1972 ; Anna Sigríður Ólafsdóttir 1974
URI: http://hdl.handle.net/10802/14719
Útgáfa: 2017
Efnisorð: Ritrýndar greinar; Íþróttafélög; Börn; Foreldrar; Matarmenning; Framboð (hagfræði)
Tungumál: Íslenska
Tengd vefsíðuslóð: http://netla.hi.is/serrit/2017/menntavika_2017/002.pdf
Tegund: Tímaritsgrein
Gegnir ID: 991009442379706886
Birtist í: Netla 2017
Athugasemdir: Rafræn útgáfa eingönguSérrit 2017 - Menntakvika 2017
Útdráttur: Fjöldi íslenskra barna stundar æfingar hjá íþróttafélögum í frítíma sínum og mótast börnin á ýmsan hátt af umhverfi íþróttamiðstöðva og nágrennis. Markmið rannsóknarinnar var að rannsaka fæðuval 10–18 ára barna í tengslum við íþróttaæfingar þeirra og matarumhverfi hjá Ungmennafélaginu Aftureldingu (UMFA) í Mosfellsbæ. Bæjarfélagið Mosfellsbær hefur verið brautryðjandi sem heilsueflandi samfélag frá innleiðingu 2013. Leitast var við að varpa ljósi á það hvernig börn og foreldrar upplifa matarumhverfi og fæðuframboð innan íþróttamiðstöðvar félagsins, auk þess að kanna fæðuvenjur barna í tengslum við æfingar. Ljóst má vera að umhverfið er mikilvægur áhrifaþáttur fæðuvals. Tilgáta verkefnisins var tvíþætt: A) Að fæðuvenjur í tengslum við íþróttaiðkun barnanna mótist að nokkru leyti af framboði í veitingasölunni og framboðið hindri það hugsanlega að hægt sé að velja hollan mat. B) Markaðssetning og auglýsingar um hvers kyns óhollustu séu áberandi í matarumhverfinu og börn jafnt sem foreldrar upplifi það sem hindrun. Rannsóknin tók til 221 barns, 105 stúlkna og 116 drengja, í sjö greinum íþrótta hjá félaginu og foreldra þeirra (n=175). Notaðir voru tveir áþekkir spurningalistar og var annar ætlaður foreldrum en hinn börnum. Jafnframt gerðu rannsakendur úttekt á matarumhverfi, þar með talið auglýsingum, og fæðuframboði innan íþróttamiðstöðvarinnar. ...


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða Lýsing
002.pdf 1007.Kb PDF Skoða/Opna Heildartexti

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta