dc.contributor.author | Jónína Þ. Jóhannsdóttir | is |
dc.contributor.author | Heiðdís Smáradóttir | is |
dc.contributor.author | Eyrún Gígja Káradóttir | is |
dc.contributor.author | Eydís Elva Þórarinsdóttir | is |
dc.contributor.author | María Pétursdóttir | is |
dc.contributor.author | Rannveig Björnsdóttir | is |
dc.date.accessioned | 2011-08-17T15:38:29Z | |
dc.date.available | 2011-08-17T15:38:29Z | |
dc.date.issued | 2008-09 | |
dc.identifier.issn | 1670-7192 | |
dc.identifier.uri | http://hdl.handle.net/10802/1432 | |
dc.description.abstract | Markmið verkefnisins í heild sinni er að bæta lifun og gæði lúðulirfa í startfóðrun og nota til þess umhverfisvænar aðferðir þar sem hrogn og lirfur eru meðhöndluð
með nýrri blöndu bætibaktería sem einangraðar hafa verið úr eldisumhverfi lúðulirfa. Mikil afföll verða á fyrstu stigum lúðueldis og því mikilvægt að skapa ákjósanlegt umhverfi á þessum fyrstu og viðkvæmustu stigum eldisins. Notkun bætibaktería er ein leið til þess en bætibakteríur geta með ýmsum hætti haft jákvæð áhrif á hýsil sinn, s.s. komið í veg fyrir að óæskilegar bakteríur nái fófestu í meltingarvegi hans, örvað ónæmissvörun og bætt jafnvægi í meltingarvegi hans. Framkvæmdar voru þrjár aðskildar tilraunir í eldisstöð Fiskeyjar hf. þar sem meðhöndlað var með blöndu bætibaktería á mismunandi stigum eldisins. Áhrif meðhöndlunar voru metin m.t.t. afkomu og gæða hrogna og lirfa en samsetning bakteríuflóru eldisins var einnig skoðuð. Bætibakteríum var bætt út í eldisumhverfi hrogna en lirfur voru meðhöndlaðar í gegnum fóðurdýrin. Helstu niðurstöður benda til þess að meðhöndlun með nýrri blöndu bætibaktería geti haft áhrif á samsetningu bakteríuflóru hrogna, lirfa og fóðurdýra þeirra en að meðhöndla þurfi tíðar en gert var í rannsókninni ef viðhalda á áhrifum til lengri tíma. Endurtekin meðhöndlun á hrognastigi virtist lækka tíðni gallaðra kviðpokalirfa auk þess sem meðhöndlun frá upphafi frumfóðrunar virtist hafa jákvæð áhrif á afkomu lirfa í lok frumfóðrunar. |
is |
dc.language.iso | is | |
dc.publisher | Matís | is |
dc.relation.ispartofseries | Skýrsla Matís ; 28-08 | |
dc.subject | Lúðueldi | is |
dc.subject | Bætibakteríur | is |
dc.subject | Hrogn | is |
dc.subject | Lifur | is |
dc.subject | Bakteríuflóra | is |
dc.title | Meðhöndlun hrogna og lirfa með nýrri blöndu bætibaktería | is |
dc.title.alternative | Treatment of halibut (Hippoglossus hippoglossus L.) eggs and larvae using putative probionts isolated from the production system | is |
dc.type | Skýrsla | is |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Skyrsla_28-08.pdf | 743.5Kb |
Skoða/ |