Titill: | Blóðþrýstingslækkandi áhrif (Ace-hindravirkni) í íslensku sjávarfangi : uppsetning mæliaðferðaBlóðþrýstingslækkandi áhrif (Ace-hindravirkni) í íslensku sjávarfangi : uppsetning mæliaðferða |
Höfundur: | Lárus Freyr Þórhallsson 1981 ; Margrét Geirsdóttir ; Guðmundur Óli Hreggviðsson 1954 ; Sigurður Vilhelmsson 1953 ; Guðjón Þorkelsson 1953 |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/1386 |
Útgefandi: | Matís |
Útgáfa: | 05.2007 |
Ritröð: | Skýrsla Matís ; 10-07 |
Efnisorð: | Blóðþrýstingslækkandi áhrif; Sjávarfang; Uppsetning mæliaðferða; ACE; Blóðþrýstingur |
ISSN: | 1670-7192 |
Tungumál: | Íslenska |
Útdráttur: | Meginmarkmið verkefnisins var að setja upp mælingar á ACEhindra
virkni á Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins (Matís ohf). Það er ásetningur Matís ohf að nýta þessar mæliaðferðir til að auka verðmæti íslensks sjávarfangs með því að kanna í hvaða afurðum þessi virkni finnst og þar með verði mögulegt að þróa nýjar afurðir og afla nýrra markaða fyrir íslenskt sjávarfang. Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Háskólinn í LaRochelle í Frakklandi og Lyfjafræðideild Háskóla Íslands unnu saman að þessu verkefni. Ástæðan fyrir verkefninu var að á Rf er unnið að nokkrum verkefnum þar sem stefnan er að kanna svonefnda lífvirkni ( heislusamleg/heilsubætandi) sjávarafurða. Lífvirkni er forsenda þess að mögulegt sé að markaðssetja vörur sem markfæði (functional food). Háskólinn í LaRochelle hefur sérhæft sig í mælingum á ACE-hindrandi áhrifum peptíða úr alls konar hráefni. Þessar mælingar hafa ekki verið gerðar á Íslandi.. Stór hluti verkefnisins var unnin sem lokaverkefni í M.Sc. námi í lyfjafræði við Háskóla Íslands. Byggir skýrsla þessi að mestu leyti að mastersritgerð Lárusar Freys Þórhallssonar vorið 2007. Sett var upp og þróuð mæliaðferð til að mæla ACE hindrun sem virkar til ákvörðunar á IC50 gildum samkvæmt gildingu með enalapríl. Einnig gefa niðurstöður til kynna að einhverja ACE hindrandi virkni er að finna í þorskhýdrólýsati og var mesta virknin í hýdrólýsati sem síað var með 1 kDa síu. Afrakstur verkefnisins er því mæliaðferð sem nýtt verður í fjölmörgum verkefnum um lífvirkni í íslensku sjávarfangi. Verkefnið hefur óbein áhrif á verðmæti íslensks sjávarfangs með því að stuðla að þróun á vörum til notkunar í sérfæði, fæðubótarefni og markfæði. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Skyrsla_10-07.pdf | 343.0Kb |
Skoða/ |