dc.contributor.author | Hannes Magnússon 1952 | is |
dc.contributor.author | Lauzon, Hélene L. | is |
dc.contributor.author | Kolbrún Sveinsdóttir | is |
dc.contributor.author | Ása Þorkelsdóttir | is |
dc.contributor.author | Birna Guðbjörnsdóttir 1957 | is |
dc.contributor.author | Emilía Martinsdóttir 1949 | is |
dc.contributor.author | Guðrún Ólafsdóttir | is |
dc.contributor.author | María Guðjónsdóttir | is |
dc.contributor.author | Sigurður Bogason | is |
dc.contributor.author | Sigurjón Arason 1950 | is |
dc.date.accessioned | 2011-08-16T15:47:23Z | |
dc.date.available | 2011-08-16T15:47:23Z | |
dc.date.issued | 2007-05 | |
dc.identifier.issn | 1670-7192 | |
dc.identifier.uri | http://hdl.handle.net/10802/1379 | |
dc.description.abstract | Markmið þessara tilrauna var að meta áhrif ofurkælingar, lofskiptra
umbúða (MAP) og pæklunar á gæðabreytingar og geymsluþol þorskbita. Þá voru könnuð áhrif gaspökkunar og mismunandi geymsluhita á vöxt nokkurra sýkla og bendiörvera. Tilraunin var framkvæmd í október 2006 hjá Samherja á Dalvík. Eftir lageringu (0,6 og 2% salt) var fiskurinn snyrtur og hnakkastykkjum pakkað annars vegar í hefðbundnar 3 kg frauðplastpakkningar (loftpökkun) og hins vegar í loftskiptar umbúðir. Gasblandan var stillt á 50% CO2, 5% O2 og 45% N2. Þrír bitar (350- 550g) voru settir í hvern bakka með þerrimottu. Eftir pökkun var sýnunum komið fyrir í frystihermum Matís sem stilltir voru á 0°C, -2°C og -4°C. Sýnin voru rannsökuð yfir fjögurra vikna geymslutímabil. Skynmat, örverutalningar og efnamælingar voru notaðar til að meta gæðabreytingar og geymsluþol. Pæklaður (2% salt) fiskur geymdist skemur en ópæklaðir (0,6% salt). Samanburður á örverufjölda daginn eftir pökkun sýndi að pæklaði fiskurinn innihélt tífalt meira af kuldaþolnum örverum en ópæklaður. Samkvæmt skynmati var geymsluþol pæklaða fisksins við -2°C 12-15 dagar í bæði loft- og gaspökkuðum bitum. Í ópæklaða fiskinum voru áhrif gaspökkunar og ofurkælingar greinileg. Geymsluþol loftpakkaðra bita var um 11 dagar við 0°C en 14-15 dagar við -2°C. Geymsluþol gaspakkaðra bita var hins vegar um 15 dagar við 0°C en um 21 dagur við -2°C. Ofurkæling ferskra ópæklaðra fiskafurða í loftskiptum umbúðum getur því aukið geymsluþol verulega. Gaspökkun dró verulega úr vaxtarhraða sýkla og bendiörvera við lágt hitastig. Mest voru áhrifin á vöxt Salmonella, þá á Escherichia coli en minnst á Listeria monocytogenes. Við loftskilyrði óx L. monocytogenes við -2°C, en E. coli byrjaði að fjölga sér við 5°C og Salmonella við 10°C. |
is |
dc.language.iso | is | |
dc.publisher | Matís | is |
dc.relation.ispartofseries | Skýrsla Matís ; 12-07 | |
dc.subject | Ofurkæling | is |
dc.subject | Loftskiptar umbúðir | is |
dc.subject | Geymsluþol | is |
dc.subject | Örverur | is |
dc.subject | Skynmat | is |
dc.subject | Þorskur | is |
dc.title | Geymsluþolstilraunir á þorskbitum. Áhrif ofurkælingar, pæklunar og gaspökkunar á gæðabreytingar og geymsluþol | is |
dc.title.alternative | Storage trials on cod loins. Effect of superchilling, brining and modified atmosphere packaging (MAP) on quality changes and sensory shelf-life | en |
dc.type | Skýrsla | is |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
Skyrsla_12-07.pdf | 757.9Kb |
Skoða/ |