Titill: | Áhrif samdráttar í sauðfjárrækt : greinargerð unnin fyrir Stéttarsamband bændaÁhrif samdráttar í sauðfjárrækt : greinargerð unnin fyrir Stéttarsamband bænda |
Höfundur: | |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/7478 |
Útgefandi: | Byggðastofnun |
Útgáfa: | 05.1992 |
Efnisorð: | Framleiðsluhagfræði; Sauðfjárrækt |
Tungumál: | Íslenska |
Tengd vefsíðuslóð: | http://www.byggdastofnun.is/static/files/Skyrslur/saudfjarraekt.pdf |
Tegund: | Bók |
Gegnir ID: | 991002228959706886 |
Athugasemdir: | Myndefni: kort, línurit, töflur Í október 1990 fór Stéttarsamband bænda þess á leit að Byggðastofnun yrði falið að meta áhrif fyrirsjáanlegs samdráttar í sauðfjárrækt. Þá þegar var vitað að samdráttur yrði nauðsynlegur þegar þágildandi búvörusamningur rynni út. Þessi greinargerð er tilraun til þess að leysa verkefnið af hendi með tilliti til breytinga sem framundan eru á högum sauðfjárbænda nú þegar nýr búvörusamningur hefur verið gerður. Þegar Stéttarsambandið lagði fram beiðni sína var útlit fyrir að um yrði að ræða flatan niðurskurð á hvern framleiðanda í greininni í líkingu við það sem áður hafði verið gert. Í hinum nýja búvörusamningi var bændum gert tilboð um sölu á fullvirðisrétti og bústofni. Með því móti er gert ráð fyrir að nokkur hagræðing verði í landbúnaðinum. Þegar þetta er ritað er komið í ljós að enn frekari samdráttur í sauðfjárrækt er nauðsynlegur. Ekki hefur verið ákveðið endanlega hvernig hann verður framkvæmdur. Í þessari greinargerð er í fyrstu fjallað um hlut landbúnaðar í atvinnulífi landsmanna og síðan um sauðfjárræktina og þróun hennar. Þá er fjallað um þau landsvæði þar sem sauðfjárræktin skiptir mestu máli. Að síðustu er fjallað um afleiðingar búvörusamningsins fyrir búsetuþróun í landinu. Það er von stofnunarinnar að þessi skýrsla veiti gagnlegar upplýsingar um stöðu sauðfjárræktarinnar og hvaða afleiðingar þær breytingar sem nú ganga yfir muni hafa fyrir búsetuna. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
saudfjarraekt.pdf | 336.5Kb |
Skoða/ |