Titill: | Húsakönnun : Laugarnesvegur - Sundlaugavegur - Laugalækur - Hrísateigur - OtrateigurHúsakönnun : Laugarnesvegur - Sundlaugavegur - Laugalækur - Hrísateigur - Otrateigur |
Höfundur: | Drífa Kristín Þrastardóttir 1976 ; Guðný Gerður Gunnarsdóttir 1953 |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/4915 |
Útgefandi: | Minjasafn Reykjavíkur |
Útgáfa: | 2009 |
Ritröð: | Minjasafn Reykjavíkur., Skýrslur Minjasafns Reykjavíkur - Árbæjarsafns ; nr. 150Skýrslur Árbæjarsafns ; nr. 150 |
Efnisorð: | Borgarskipulag; Byggingar; Húsavernd; Húsfriðun; Reykjavík |
Tungumál: | Íslenska |
Tengd vefsíðuslóð: | http://www.minjasafnreykjavikur.is/PortalData/12/Resources/skjol/skyrslur/skyrsla_150.pdf |
Tegund: | Skýrsla |
Gegnir ID: | 991008972039706886 |
Athugasemdir: | Myndefni: myndir Hér fer á eftir könnun byggðar á svæði sem tekur til staðgreinireita 1.346.0 og 1.347.0 og hluta af reitum 1.345.0 og 1.349.0 í Reykjavík, en svæðið afmarkast af Sundlaugavegi til suðurs, Laugalæk til norðausturs og vesturmörkum lóða vestan Laugarnesvegar. Húsakönnunin er unnin að beiðni Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur í samræmi við skipulagslög vegna gerðar deiliskipulags á svæðinu. Þessir reitir eru utan þess svæðis sem varðveisluskrá Reykjavíkur nær til, en það er svæðið innan Hringbrautar / Snorrabrautar. Húsin á þessum reitum voru að mestu byggð á fjórum tímabilum, 1926–1929, 1932–1934, 1942–1946 og 1955–1968. Ekki er um að ræða tæmandi sögulega úttekt á viðkomandi svæði, en þó er skoðað hvaða hús hafa verið byggð á svæðinu í áranna rás og þau metin sem enn standa. Sú rannsókn er nauðsynleg til að átta sig á samhengi byggðarinnar og þróun svæðisins. Við mat á varðveislugildi húsa er lagt mat á fjóra þætti: Listrænt gildi, menningarsögulegt gildi, umhverfisgildi og upprunalega gerð. Varðveislugildi húsa byggist síðan á innbyrðis mati á vægi hvers þáttar og vega þar þyngst gildi byggingarlistar, menningarsögu og umhverfis. Stuðst er við Húsverndarskrá Reykjavíkur, sem gefin var út sem þemahefti með Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996–2016, Húsvernd í Reykjavík, svæðið innan Hringbrautar / Snorrabrautar. Faglega ráðgjöf við gerð varðveislumatsins veitti Pétur H. Ármannsson arkitekt. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
skyrsla_150.pdf | 16.10Mb |
Skoða/ |