Titill: | Deiliskráning vegna fyrirhugaðra framkvæmda við línustæði og orkuvinnslustöðvar : Krafla, Gjástykki, Þeistareykir, BakkiDeiliskráning vegna fyrirhugaðra framkvæmda við línustæði og orkuvinnslustöðvar : Krafla, Gjástykki, Þeistareykir, Bakki |
Höfundur: | Uggi Ævarsson 1974 |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/4899 |
Útgefandi: | Fornleifastofnun Íslands |
Útgáfa: | 2007 |
Efnisorð: | Fornleifar; Fornleifaskráning; Mývatnssveit; Krafla; Gjástykki; Þeistareykir; Bakki við Húsavík |
Tungumál: | Íslenska |
Tengd vefsíðuslóð: | http://gogn.lv.is/files/2007/FS366-07211.pdf |
Tegund: | Skýrsla |
Gegnir ID: | 991005945739706886 |
Athugasemdir: | Fjölrit Myndefni: myndir, kort Síðla sumars árið 2007 skráði Fornleifastofnun Íslands ses. (FSÍ) fornleifar á fyrirhuguðum línustæðum sem liggja frá Kröflu í Mývatnssveit, norður til Þeistareykja og þaðan norður að álverslóð við Bakkahöfða hjá Húsavík. Verkfræðistofan VGK hafði milligöngu með verkinu en hún vinnur að mati á umhverfisáhrifum framkvæmda fyrir Landsvirkjun, Landsnet og Þeistareyki ehf. Vettvangsvinna vegna skráningarinnar var unnin á tímabilinu 8. ágúst – 5. september, 2007, af Ugga Ævarssyni fornleifafræðingi. Einnig sá hann um úrvinnslu gagna og að setja saman þessa skýrslu en um kortlagningu sá Elín Ósk Hreiðarsdóttir. Umfjöllun um orkuvinnslusvæði byggist á fyrri vettvangsathugunum FSÍ. Á undanförnum árum hefur FSÍ unnið nokkur fornleifaskráningarverkefni á því svæði sem hér er undir og hefur verið stuðst við þau gögn við samningu þessarar skýrslu þegar við hefur átt.Skýrslur um fornleifar á lóðarstæðinu sjálfu annarsvegar og hinsvegar í vegarstæði frá Bakka til Húsavíkur voru afhentar sveitarstjórn Húsavíkur þann 25. september 2007. Í eftirfarandi umfjöllun um árangur fornleifakönnunarinnar er minjunum skipt í 3 flokka: 1. fornleifar á framkvæmdasvæðum, við fyrirhuguð línustæði 2. fornleifar á framkvæmdasvæðum, á orkuvinnslusvæðum 3. aðrar fornleifar á Þeistareykjarjörðinni sem eru utan við framkvæmdasvæði og telst ekki stafa bein ógn af yfirvofandi framkvæmdum. Auk vettvangsrannsóknanna er í skýrslunni greint stuttlega frá nokkrum almennum atriðum, s.s. um löggjöf, aðferðir við fornleifaskráningu, um staðhætti á skráningarsvæði og byggðasögu, í þeim tilgangi að lesendur geti betur glöggvað sig á samhengi þeirra fornleifafræðilegu upplýsinga sem hér eru lagðar fram. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
FS366-07211.pdf | 9.261Mb |
Skoða/ |