Titill: | Húsakönnun : Kringlan - Listabraut - Kringlumýrarbraut - MiklabrautHúsakönnun : Kringlan - Listabraut - Kringlumýrarbraut - Miklabraut |
Höfundur: | Drífa Kristín Þrastardóttir 1976 ; Guðný Gerður Gunnarsdóttir 1953 ; Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/4888 |
Útgefandi: | Árbæjarsafn |
Útgáfa: | 2006 |
Ritröð: | Minjasafn Reykjavíkur., Skýrslur Minjasafns Reykjavíkur - Árbæjarsafns ; nr. 133Skýrslur Árbæjarsafns ; nr. 133 |
Efnisorð: | Húsfriðun; Húsavernd; Byggingar; Borgarskipulag; Reykjavík |
Tungumál: | Íslenska |
Tengd vefsíðuslóð: | http://www.minjasafnreykjavikur.is/PortalData/12/Resources/skjol/skyrslur/skyrsla_133.pdf |
Tegund: | Skýrsla |
Gegnir ID: | 991003669049706886 |
Athugasemdir: | Unnið að beiðni Skipulagsfulltrúa Reykjavíkur vegna deiliskipulagsvinnu Myndefni: myndir, uppdr. Hér fer á eftir könnun byggðar á staðgreinireitum 1.721.0 og 1.723.0 í Reykjavík, en svæðið afmarkast af Kringlunni, Listabraut, Kringlumýrarbraut og Miklubraut. Húsakönnunin er unnin að beiðni Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur í samræmi við skipulagslög vegna gerðar deiliskipulags á svæðinu. Þessi reitur er utan þess svæðis sem varðveisluskrá Reykjavíkur nær til, en það er svæðið innan Hringbrautar / Snorrabrautar. Ekki er um að ræða tæmandi sögulega úttekt á viðkomandi svæði, en þó er skoðað hvaða hús hafa verið byggð á svæðinu í gegnum árin og þau metin sem enn standa. Sú rannsókn er nauðsynleg til að átta sig á samhengi byggðarinnar og þróun svæðisins. Við mat á varðveislugildi húsa hefur verið beitt svokallaðri SAVE-aðferð (Survey of Architectural Value in the Environment) sem gerð er grein fyrir í ritinu Leiðbeiningar um gerð bæja- og húsakannana, útgefnu af Húsafriðunarnefnd ríkisins 1996. Þar er höfð til hliðsjónar dönsk SAVE-aðferð, þar sem lagt er mat á fjóra þætti: Listrænt gildi, menningarsögulegt gildi, umhverfisgildi og upprunalega gerð. Varðveislugildi húsa byggist síðan á innbyrðis mati á vægi hvers þáttar og vega þar þyngst gildi byggingarlistar, menningarsögu og umhverfis. Einnig er stuðst við Húsverndarskrá Reykjavíkur, Húsvernd í Reykjavík, svæðið innan Hringbrautar / Snorrabrautar, sem gefin var út sem þemahefti með Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996–2016. Þar sem húsverndarskráin er ekki að öllu leyti byggð á rannsóknum heldur á fyrirliggjandi gögnum og úttekt byggðarinnar á staðnum, getur verið nauðsynlegt að gera breytingar eftir nákvæmari húsakönnun. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
skyrsla_133.pdf | 2.238Mb |
Skoða/ |