Titill: | Húsakönnun : Ásholt - Brautarholt - Einholt - Háteigsvegur - Laugavegur - Mjölnisholt - Stakkholt - ÞverholtHúsakönnun : Ásholt - Brautarholt - Einholt - Háteigsvegur - Laugavegur - Mjölnisholt - Stakkholt - Þverholt |
Höfundur: | Páll V. Bjarnason 1946 ; Helga Maureen Gylfadóttir 1974 ; Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/4864 |
Útgefandi: | Árbæjarsafn |
Útgáfa: | 2004 |
Ritröð: | Minjasafn Reykjavíkur., Skýrslur Minjasafns Reykjavíkur - Árbæjarsafns ; nr. 106Skýrslur Árbæjarsafns ; nr. 106 |
Efnisorð: | Húsavernd; Húsfriðun; Byggingar; Reykjavík |
Tungumál: | Íslenska |
Tengd vefsíðuslóð: | http://www.minjasafnreykjavikur.is/skyrslur/skyrsla_106.pdf |
Tegund: | Skýrsla |
Gegnir ID: | 991000851139706886 |
Athugasemdir: | Unnið að beiðni Skipulagsfulltrúa Reykjavíkur vegna deiliskipulagsvinnu Myndefni: myndir Hér fer á eftir rannsókn á núverandi byggð á reit 1.244.1 og aðlægum reit 1.244.3 og reitunum 1.241.0, 1.241.1 og 1.242.0 í Reykjavík, sem afmarkast af Einholti, Brautarholti, Ásholti, Laugavegi og Þverholti en innan reitsins liggja Mjölnisholt og Stakkholt. Einnig stendur eitt hús við Háteigsveg 7. Húsakönnunin er unnin að beiðni Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur í samræmi við skipulagslög vegna gerðar deiliskipulags á svæðinu. Þessi reitur er utan þess svæðis sem varðveisluskrá Reykjavíkur nær til, en það er svæðið innan Hringbrautar/Snorrabrautar. Húsin á reitnum voru byggð á árunum 1927-1992. Ekki er um að ræða tæmandi sögulega úttekt á viðkomandi svæði, en þó er skoðað hvaða hús hafa verið byggð á svæðinu í gegnum árin og þau metin sem enn standa. Sú rannsókn er nauðsynleg til að átta sig á samhengi byggðarinnar og þróun svæðisins. Við mat á varðveislugildi húsa hefur verið beitt svokallaðri SAVE-aðferð (Survey in Architectural Value in the Environment) sem gerð er grein fyrir í ritinu Leiðbeiningar um gerð bæja- og húsakannana, sem var útgefið af Húsafriðunarnefnd ríkisins árið 1996. Þar er höfð til hliðsjónar dönsk SAVE-aðferð, þar sem lagt er mat á fjóra þætti; byggingarlist, menningarsögulegt gildi, umhverfisgildi og upprunalega gerð. Varðveislugildi húsa byggist síðan á innbyrðis mati á vægi hvers þáttar og vega þar þyngst gildi byggingarlistar, menningarsögu og umhverfis. Einnig er stuðst við Húsverndarskrá Reykjavíkur, sem gefin var út sem þemahefti með Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996 – 2016 (Húsvernd í Reykjavík, svæðið innan Snorrabrautar/ Hringbrautar). Þar sem ofangreindir reitir eru ekki innan þess svæðis, hefur ekki verið lagt mat á byggingar sem þarna standa fyrr en nú. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
skyrsla_106.pdf | 6.829Mb |
Skoða/ |