dc.contributor | Bryndís Marteinsdóttir 1980 | is |
dc.contributor | Kristbjörn Egilsson 1949 | is |
dc.contributor | Landsvirkjun | is |
dc.contributor.author | Sigurður H. Magnússon 1945 | is |
dc.date.accessioned | 2013-12-11T10:07:55Z | |
dc.date.available | 2013-12-11T10:07:55Z | |
dc.date.issued | 2007-12 | |
dc.identifier.issn | 1670-0120 | |
dc.identifier.uri | http://hdl.handle.net/10802/4411 | |
dc.description | Unnið fyrir Landsvirkjun | is |
dc.description | Myndefni: myndir, kort, töflur | is |
dc.description.abstract | Greint er frá niðurstöðum rannsóknar Náttúrufræðistofnunar Íslands á gróðri, jarðvegi og grunnvatnsstöðu á Úthéraði í ágúst 2006. Rannsókn þessi er fyrsta skref í langtímavöktun á gróðri á þeim svæðum við Lagarfljót og Jökulsá á Dal sem líklegust eru til að breytast að gróðurfari með tilkomu Kárahnjúkavirkjunar. Með virkjuninni er m.a. reiknað með að miklar breytingar verði á vatnafari fljótanna á Úthéraði. Rennsli í Jökulsá á Dal mun minnka og áin hætta að flæða vítt um áreyrar sínar, en rennsli í Lagarfljóti aukast. Svæði næst Jökulsá munu þorna eitthvað en við Lagarfljót má reikna með að land blotni sums staðar upp. Landbrot mun einnig aukast við Lagarfljót en minnka við Jökulsá á Dal. Rannsóknin var gerð að ósk Landsvirkjunar og var megintilgangur hennar að lýsa núverandi gróðri og umhverfisaðstæðum á Úthéraði.
Rannsökuð voru sjö vöktunarsvæði, fimm við Lagarfljót og tvö við Jökulsá á Dal. Á svæðunum voru lagðir út alls 34 reitir á snið þvert á landhalla út frá fljótunum. Í reitunum var gróður mældur og ýmsir umhverfisþættir kannaðir. Við úrvinnslu gagna var m.a. beitt hnitun og flokkun. Á vöktunarsvæðunum var að finna allt frá mjög blautu votlendi upp í þurrlendi og benda niðurstöðurnar til þess að jarðvegsraki hafi mikil áhrif á gróðurfar og umhverfisaðstæður. Þekja háplantna og mosa var mest í blautu landi en minnkaði eftir því sem dýpra var á grunnvatn. Fléttuþekja jókst eftir því sem land var þurrara. Allsterkt samband var á milli tegundasamsetningar annars vegar og kolefnis- og niturinnihalds jarðvegs, sýrustigs, gróðurhæðar og tegundaauðgi hins vegar. Sýrustig var að jafnaði lægst, gróðurhæð mest, kolefnis- og niturmagn í jarðvegi hæst og tegundaauðgi minnst þar sem blautast var. Í skýrslunni er fjallað um líklegar gróðurbreytingar á vöktunarsvæðunum af völdum virkjunarinnar. Þar sem land blotnar mun plöntutegundum fækka, þurr- og deiglendistegundir hopa en sérhæfðar votlendistegundir breiðast út. Á mýrlendissvæðum sem þorna geta rakakærar tegundir aftur á móti horfið en þurrlendistegundum fjölgað. Gerð er grein fyrir tillögum um framhald vöktunar. Lagt er til að gróður á vöktunarsvæðunum verði mældur á 5–10 ára fresti auk þess sem fylgst verði með gróðurbreytingum á þornandi áreyrum Jökulsár á Dal og mælingar hafnar á grunnvatnsstöðu í reitum. Einnig er lagt til að loftmyndir/SPOT-5 gervitunglamyndir verði teknar af Úthéraði á 10–20 ára fresti. |
is |
dc.format.extent | 51 s. | is |
dc.language.iso | is | |
dc.publisher | Náttúrufræðistofnun Íslands | is |
dc.relation.ispartofseries | Náttúrufræðistofnun Íslands., Skýrslur ; NÍ-07012 | |
dc.relation.uri | http://utgafa.ni.is/skyrslur/2007/NI-07012.pdf | |
dc.subject | Vöktun | is |
dc.subject | Umhverfisáhrif | is |
dc.subject | Gróðurfar | is |
dc.subject | Háplöntur | is |
dc.subject | Vatnsborð | is |
dc.subject | Úthérað | is |
dc.subject | Jökulsá á Dal | is |
dc.subject | Lagarfljót | is |
dc.title | Kárahnjúkavirkjun : gróðurvöktun á Úthéraði : áhrif vatnsborðsbreytinga í Jökulsá á Dal og Lagarfljóti | is |
dc.type | Skýrsla | is |
dc.identifier.gegnir | 991008719489706886 |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
NI-07012.pdf | 6.472Mb |
Skoða/ |