Titill: | Bakkafjöruvegur : gróðurfar og fuglalífBakkafjöruvegur : gróðurfar og fuglalíf |
Höfundur: | Guðmundur Guðjónsson 1953 ; Kristbjörn Egilsson 1949 ; Kristinn Haukur Skarphéðinsson 1956 ; Vegagerðin |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/4332 |
Útgefandi: | Náttúrufræðistofnun Íslands |
Útgáfa: | 12.2007 |
Ritröð: | Náttúrufræðistofnun Íslands., Skýrslur ; NÍ-07009 |
Efnisorð: | Gróðurfar; Fuglalíf; Vegagerð; Umhverfismat; Umhverfisáhrif; Hafnarmannvirki; Bakkafjara |
ISSN: | 1670-0120 |
Tungumál: | Íslenska |
Tengd vefsíðuslóð: | http://utgafa.ni.is/skyrslur/2007/NI-07009.pdf |
Tegund: | Skýrsla |
Gegnir ID: | 991006653259706886 |
Athugasemdir: | Unnið fyrir Vegagerðina Myndefni: myndir, kort, töflur |
Útdráttur: | Í þessari skýrslu eru niðurstöður rannsókna á gróðurfari og fuglalífi á hugsanlegum framkvæmdasvæðum vegagerðar og efnisnáms vegna hafnar á Bakkasandi í Austur-Landeyjum. Skoðaðar voru fjórar leiðir milli Hringvegar 1 og Bakkahafnar; tvær leiðir sem fylgja að mestu núverandi vegum og tvær nýjar veglínur sem liggja meðfram Markarfljótsaurum. Einnig var gerð úttekt á gróðurfari við fyrirhugaða efnisnámu við Kattarhrygg á Seljalandsheiði. Gróðurfarsúttektin byggist á gróðurkorti sem gert var við nýjar veglínur og efnisnámuna og eldri gróður- og landgreiningu frá 1971. Gerð var úttekt á tegundafjölbreytni háplantna í næsta nágrenni nýrra vega.
Samtals voru 114 tegundir háplantna, auk ættkvíslar túnfífla og undafífla á rannsóknasvæðinu. Allar tegundirnar sem fundust eru algengar á Suðurlandi og á landsvísu. Engin tegund er flokkuð sem sjaldgæf á landsvísu. Fuglalíf var kannað á og í grennd við nýtt vegstæði frá Hringvegi 1 niður á Bakkasand. Talningar voru gerðar á sniðum til að meta þéttleika algengustu fugla og eins var gengið úr skugga um hvaða aðrar tegundir væru varpfuglar á svæðinu. Fuglalíf er allfjölbreytt og auðugt um varptímann og vor og haust er mikil umferð gæsa um svæðið. Við Markarfljót er einn mikilvægasti náttstaður grágæsa hér á landi. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
NI-07009.pdf | 4.821Mb |
Skoða/ |