#

Útbreiðsla naðurtungu við fjögur borstæði á Reykjanesi

Skoða fulla færslu

Titill: Útbreiðsla naðurtungu við fjögur borstæði á ReykjanesiÚtbreiðsla naðurtungu við fjögur borstæði á Reykjanesi
Höfundur: Olga Kolbrún Vilmundardóttir 1981 ; Ellý Guðjohnsen 1958 ; Ásrún Elmarsdóttir 1971 ; Hitaveita Suðurnesja
URI: http://hdl.handle.net/10802/4238
Útgefandi: Náttúrufræðistofnun Íslands
Útgáfa: 12.2005
Ritröð: Náttúrufræðistofnun Íslands., Skýrslur ; NÍ-05015
Efnisorð: Gróðurfar; Plöntur; Umhverfismat; Naðurtunga; Reykjanes
ISSN: 1670-0120
Tungumál: Íslenska
Tengd vefsíðuslóð: http://utgafa.ni.is/skyrslur/2005/NI-05015.pdf
Tegund: Skýrsla
Gegnir ID: 991003937839706886
Athugasemdir: Unnið fyrir Hitaveitu SuðurnesjaMyndefni: myndir, kort, töflur
Útdráttur: Fyrir hönd Hitaveitu Suðurnesja hf. óskaði VSÓ Ráðgjöf, í bréfi dagsettu 10. október 2005, eftir að Náttúrufræðistofnun Íslands kannaði nánar gróður við fyrirhugaðar borholur vegna jarðhitanýtingar á Reykjanesi. Komið hefur fram í eldri rannsóknum og áðursendum gögnum Náttúrufræðistofnunar til VSÓ Ráðgjafar að tegundin naðurtunga (Ophioglossum azoricum) finnst í nágrenni framkvæmdasvæðisins en hún er á válista stofnunarinnar yfir tegundir í nokkurri hættu. Vegna mats á umhverfisáhrifum framkvæmdanna var farið fram á að borstæðin yrðu rannsökuð sérstaklega til að staðfesta hvort naðurtunga kæmi fyrir á þeim svæðum. Borholurnar eru allar innan svæðis sem er á náttúruminjaskrá.

Athugunarsvæði miðaðist við 50 m geisla út frá meintri staðsetningu borholanna. Naðurtunga fannst ekki innan rannsóknasvæðanna og voru dregnar þær ályktanir að hana sé ekki að finna á svæðunum fjórum. Samkvæmt hitamælingum gætu þó ákjósanleg skilyrði fyrir vöxt og viðgang naðurtungu verið fyrir hendi innan svæðisins við borholu 21 og í nágrenni svæðis 22. Þótt langt sé liðið á haustið ættu niðurstöðurnar að gefa nokkra hugmynd um útbreiðslu naðurtungu innan framkvæmdasvæðanna.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
NI-05015.pdf 944.7Kb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta