dc.contributor | Línuhönnun | is |
dc.contributor.author | Kristján Jónasson 1964 | is |
dc.date.accessioned | 2013-12-06T16:34:06Z | |
dc.date.available | 2013-12-06T16:34:06Z | |
dc.date.issued | 2006-09 | |
dc.identifier.issn | 1670-0120 | |
dc.identifier.uri | http://hdl.handle.net/10802/4197 | |
dc.description | Unnið fyrir Línuhönnun | is |
dc.description | Myndefni: myndir, kort, töflur | is |
dc.description.abstract | Hrafntinna er fremur sjaldgæf bergtegund sem finnst aðeins á virkum eldfjallasvæðum og er efnasamsetning hennar sú sama og líparíts. Hérlendis er hrafntinna þekkt frá nokkrum stöðum en yfirleitt í mjög litlu magni. Stærstu svæðin eru Hrafntinnusker á Torfajökulssvæði og Hrafntinnuhryggur við Kröflu, nokkru minna svæði er t.d. Austurbjallar norðan við Tungnaá.
Hrafntinna er eitt þeirra efna sem notuð hafa verið í steiningu húsa. Þar er hún gjarnan blönduð kvarsi, stundum silfurbergi, kalki eða öðrum efnum. Könnun á magni hrafntinnu á ofangreindum svæðum leiddi í ljós að mun minna er af hrafntinnu á þessum stöðum en talið hafði verið. Þannig er hrafntinna aðeins brot af þeim myndunum sem hún tilheyrir, líparíti. Á Hrafntinnuhrygg er áætlað að á hverjum fermetra sé 1,5 kg af hrafntinnu, innan við 0,5 kg/m2 í Austurbjöllum en 1,7 kg/m2 í Hrafntinnuskeri. Hrafntinna er síst af gæðum í Austurbjöllum en best í Hrafntinnuhrygg, þar er hún raunar einstaklega falleg. Talið er að til viðgerða á Þjóðleikhúsinu í Reykjavík þurfi um 50 tonn af hrafntinnu og hefur í þeim efnum verið litið til Hrafntinnuhryggs og Hrafntinnuskers. Hrafntinnuna þarf að mylja í heppilega kornastærð til steiningar og er þar gert ráð fyrir 50% nýtingu. Ekki er mælt með mikilli efnistöku á þessum stöðum og þá einungis vegna friðaðra bygginga. Þá væri rétt að kanna frekar hvort unnt sé að framleiða svart gler á hagkvæman hátt til þessarra viðgerða og til að nota í framtíðinni. |
is |
dc.format.extent | 26 s. | is |
dc.language.iso | is | |
dc.publisher | Náttúrufræðistofnun Íslands | is |
dc.relation.ispartofseries | Náttúrufræðistofnun Íslands., Skýrslur ; NÍ-06004 | |
dc.relation.uri | http://utgafa.ni.is/skyrslur/2006/NI-06004.pdf | |
dc.subject | Umhverfisvernd | is |
dc.subject | Umhverfisáhrif | is |
dc.subject | Hrafntinna | is |
dc.subject | Líparít | is |
dc.subject | Gosberg | is |
dc.subject | Hrafntinnusker | is |
dc.subject | Hrafntinnuhryggur (Rangárvallasýsla) | is |
dc.subject | Austurbjallar | is |
dc.title | Hrafntinna í Hrafntinnuhrygg, Hrafntinnuskeri og Austurbjöllum | is |
dc.type | Skýrsla | is |
dc.identifier.gegnir | 991003544579706886 |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
NI-06004.pdf | 3.765Mb |
Skoða/ |