Titill: | Gróður í HeiðmörkGróður í Heiðmörk |
Höfundur: | Kristbjörn Egilsson 1949 ; Guðmundur Guðjónsson 1953 ; Reykjavíkurborg |
URI: | http://hdl.handle.net/10802/4194 |
Útgefandi: | Náttúrufræðistofnun Íslands |
Útgáfa: | 06.2006 |
Ritröð: | Náttúrufræðistofnun Íslands., Skýrslur ; NÍ-06001 |
Efnisorð: | Gróðurfar; Plöntur; Mosar; Gróðurkort; Heiðmörk; Reykjavík |
ISSN: | 1670-0120 |
Tungumál: | Íslenska |
Tengd vefsíðuslóð: | http://utgafa.ni.is/skyrslur/2006/NI-06001.pdf |
Tegund: | Skýrsla |
Gegnir ID: | 991003540709706886 |
Athugasemdir: | Unnið fyrir Reykjavíkurborg Myndefni: myndir, [1] kort br., töflur |
Útdráttur: | Á fundi þann 14. apríl 2005 fór Þórólfur Jónsson hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar þess á leit við Náttúrufræðistofnun Íslands, að stofnunin gerði áætlun um kostnað vegna endurgerðar á gróðurkortum af friðlandinu í Heiðmörk, úttektar á tegundafjölbreytni háplantna og fuglalífi. Reykjavíkurborg samþykkti áætlunina 20. maí 2005 og óskaði þess að sumarið 2005 yrði unnið að gróðurkortagerð og úttekt á háplöntum. Gert er ráð fyrir að fuglarannsóknir fari fram vorið 2006.
Gróðurkort. Gert var gróðurkort af friðlandinu í mælikvarða 1:10.000. Það var að hluta til byggt á gróður- og landgreiningu Rannsóknastofnunar landbúnaðarins frá 1966 og 1986. Endanleg gróður- og landgreining fór fram sumarið 2005. Ræktaður skógur er settur inn á kortið eftir kortlagningu Skógræktarfélags Íslands frá 2001–2003. Flatarmál friðlandsins er tæpir 32 km² og 89% þess gróið land. Útbreiddustu gróðurlendin eru ræktað skóglendi (21%), villtur birkiskógur og kjarr (20%), mosagróður (17%), lyngmói (13%), graslendi (8%) og alaskalúpína (7%). Lítt eða ógróa landið er nær allt vatn (8%) og melar (3%). Lagt er til að hugað verði að því að hætta trjáplöntun á nýjum svæðum og hindra að lúpína breiðist út á óspilltum náttúrlega grónum svæðum. Háplöntur. Samtals var skráð 193 tegundir háplantna, auk ættkvíslar túnfífla í Heiðmörk. Allar tegundirnar sem fundust eru algengar á Suðvesturlandi og á landsvísu nema ein, eggtvíblaðka, Listera ovata, sem er friðlýst skv. lögum og er á válista. Auk þess fannst ný tegund fyrir Ísland, bakkaarfi, Stellaria alsine. Lagt er til að bakkaarfi verði settur á válista meðan útbreiðsla hans er könnuð nánar. Mosar. Samtals fundust 57 mosategundir á þremur völdum stöðum í Heiðmörk. Allar tegundirnar sem fundust eru algengar á Suðvesturlandi og á landsvísu. Það fer ekki milli mála að Heiðmörk er mikið náttúrudjásn. Í því felst mikil ábyrgð og um leið ögrun fyrir Reykvíkinga að viðhalda þeirri stöðu áfram. Vegna aukinnar byggðar í nágrenninu fer útivistargildi Heiðmerkur vaxandi. Miklu skiptir að borgaryfirvöld haldi þannig á málum að aukin umferð og ágangur valdi ekki skaða á náttúrufari Heiðmerkur. Segja má að nú sé að hefjast nýr kafli í nýtingu útivistarlandsins í Heiðmörk. |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
NI-06001.pdf | 25.84Mb |
Skoða/ |