dc.contributor | Ragna Árnadóttir 1966 | is |
dc.contributor | Dóms- og kirkjumálaráðuneytið. [Starfshópur um vændi] | is |
dc.date.accessioned | 2013-12-06T15:30:58Z | |
dc.date.available | 2013-12-06T15:30:58Z | |
dc.date.issued | 2006-02 | |
dc.identifier.isbn | 9979884355 (ób.) | |
dc.identifier.uri | http://hdl.handle.net/10802/4174 | |
dc.description | Myndefni: töflur | is |
dc.description | Dómsmálaráðherra skipaði hinn 23. nóvember 2004 starfshóp til að kynna sér: „Reynslu af mismunandi löggjöf um vændi, klámiðnað og mansal í Evrópu. Sérstaklega er þess farið á leit að hópurinn kynni sér reynsluna af þeirri löggjöf í Svíþjóð sem gerir kaup á vændi refsiverð og meti kosti þeirrar löggjafar og galla. Reynt verði, eftir því sem raunhæft er, að bera reynsluna af mismunandi viðhorfum og löggjöf í nágrannalöndunum saman við aðstæður hér á landi. Starfi hópsins verði hraðað og ljúki hann störfum innan þriggja mánaða frá dagsetningu bréfs þessa, sé þess kostur.“
Í starfshópinn voru skipuð Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður, tilnefnd af þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður, tilnefndur af þingflokki Samfylkingarinnar, Gunnar Örn Örlygsson alþingismaður, tilnefndur af Frjálslynda flokknum (nú í þingflokki Sjálfstæðisflokksins), Jónína Bjartmarz alþingismaður, tilnefnd af þingflokki Framsóknarflokksins, og Ásta Möller varaþingmaður, nú alþingismaður, tilnefnd af þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Formaður starfshópsins var Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, og starfsmaður hans fram til júlí 2005 var Sigríður Hjaltested, lögfræðingur í sama ráðuneyti. Yfirlit í fylgiskjali 2 vann Finnur Vilhjálmsson laganemi. Starfshópurinn hélt alls 13 fundi, sá fyrsti var haldinn í desember 2004 og sá síðasti í desember 2005. Dómsmálaráðherra var í febrúar 2005 gerð grein fyrir því að þriggja mánaða tímamarkið myndi ekki duga til og veitti hann starfshópnum þá ótímabundið umboð til að halda starfi sínu áfram. Starfshópurinn ákvað sumarið 2005 að skila ítarlegri skýrslu um viðfangsefnið (eins og það var afmarkað, sbr. umfjöllun í kafla 2 hér á eftir), sem myndi fyrst og fremst nýtast sem heimild í umræðunni um það hvort gera ætti kaup á vændi refsiverð. |
is |
dc.format.extent | 72 s. | is |
dc.language.iso | is | |
dc.publisher | Dóms- og kirkjumálaráðuneytið | is |
dc.relation.uri | http://www.domsmalaraduneyti.is/media/Skyrslur/DKM_vaendi_feb2006.pdf | |
dc.subject | Vændi | is |
dc.subject | Lög | is |
dc.subject | Ísland | is |
dc.subject | Norðurlönd | is |
dc.subject | Lagasetning | is |
dc.subject | Mansal | is |
dc.subject | Klám | is |
dc.title | Skýrsla starfshóps sem kynnti sér mismunandi löggjöf um vændi o.fl. á Norðurlöndum og víðar | is |
dc.type | Skýrsla | is |
dc.identifier.gegnir | 991002770639706886 |
Skrá | Stærð | Skráartegund | Skoða |
---|---|---|---|
DKM_vaendi_feb2006.pdf | 345.4Kb |
Skoða/ |