Titill:
|
Hrun og skriðuhætta úr Akureyrarbrekkum og HúsavíkurbökkumHrun og skriðuhætta úr Akureyrarbrekkum og Húsavíkurbökkum |
Höfundur:
|
Halldór G. Pétursson 1953
;
Björn Jóhann Björnsson 1949
;
Jón Skúlason 1940
;
Ofanflóðasjóður
|
URI:
|
http://hdl.handle.net/10802/4143
|
Útgefandi:
|
Náttúrufræðistofnun Íslands
|
Útgáfa:
|
06.2005 |
Ritröð:
|
Náttúrufræðistofnun Íslands., Skýrslur ; NÍ-05009 |
Efnisorð:
|
Skriðuföll; Ofanflóð; Hættumat; Akureyri; Húsavík
|
ISSN:
|
1670-0120 |
Tungumál:
|
Íslenska
|
Tengd vefsíðuslóð:
|
http://utgafa.ni.is/skyrslur/2005/NI-05009.pdf
|
Tegund:
|
Skannað verk; Skýrsla |
Gegnir ID:
|
991002632479706886
|
Athugasemdir:
|
Unnið fyrir Ofanflóðasjóð Myndefni: myndir, teikn., kort |
Útdráttur:
|
Fjallað er um hugsanleg ummerki um hrun og stór skriðuföll úr háum bökkum úr lausum jarðefnum á Akureyri og Húsavík. Lýst er gerð og hörku setlaga í bökkunum og grunnvatnsaðstæðum og auk þess lýst aðstæðum þar sem greinilegt hrun hefur orðið. Fjallað er um rofform af óljósum uppruna í Akureyrarbrekkum og reynt að gera sér grein fyrir hvort þau hugsanlega hafa myndast við stór skriðuföll. Þá er lauslega fjallað um snjóflóð og skriðuspýjur úr jarðvegsþekjunni utan á Akureyrarbrekkunum og við hvaða aðstæður þeir atburðir verða. Setlögin í Akureyrarbrekkum eru mjög þétt og hörð og þar sáust engar sprungur eða merki um að stór svæði væru að skríða fram. Ekki eru taldar neinar vísbendingar um yfirvofandi efnismikil hrun eða skriður úr Akureyrarbrekkum. Hrun og skrið í Húsavíkurbökkum má tengja sjávarrofi neðst í bökkunum og virðist það að mestu hætt þar sem varnargarður hefur verið byggður undir þeim. Húsavíkurbakkar eru að hluta gerðir úr lausu og hálflausu seti úr sandi og möl. Samskonar efni ysjuðu í Suðurlandskjálftum árið 2000 en við Húsavík er talið að geti orðið verulega stærri skjálftar en þar urðu. Svæðið næst Húsavíkurbökkum er skipulagt sem byggingarland en við teljum að ekki sé hægt að nota það sem byggingarsvæði nema það verði skoðað í þessu ljósi. Í lok skýrslunnar er lögð er fram lausleg áætlun um helstu verkþætti slíkrar úttektar. |